Laptop í flatskjá - DVI í HDMI?

Skjámynd

Höfundur
Hargo
</Snillingur>
Póstar: 1069
Skráði sig: Mið 13. Ágú 2008 02:18
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Laptop í flatskjá - DVI í HDMI?

Pósturaf Hargo » Lau 21. Mar 2009 18:47

Mig langar að prófa að tengja lappann minn við 32" HD ready sjónvarp. Ég reyndi að gamni að nota s-video í scart til að tengja á milli, fékk mynd en hún var svarthvít. Eftir smá bras nennti ég þessu ekki lengur, náði ekki að fá litinn til að virka. Auk þess voru gæðin slöpp enda átti ég þessa snúru til frá því ég var með gamalt túbusjónvarp. Hún var einnig svakalega löng og ég hef heyrt að því lengri sem svona gerð af snúru er því minni gæði skila sér í gegn.

Það er ekki HDMI tengi á fartölvunni en það er hinsvegar 1 x DVI-out á henni. Nú er ég ekki það vel að mér í svona snúrumálum þegar kemur því að tengja á milli tölvu og sjónvarps þannig að ég ákvað að pósta hingað inn áður en ég skellti mér á snúru. Hvernig snúru þarf ég til að fá sem mest gæði á milli? Er það ekki bara DVI í HDMI? Svona snúra: http://www.tolvulistinn.is/vara/16888

Svo er önnur hér en þetta er DVI-D karl, ekki alveg með á hreinu hvað það er: http://www.computer.is/vorur/6749

Sockets á TV-inu: 3 HDMI, 2 Scart, S-video, component video, PC input.



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3153
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 463
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Laptop í flatskjá - DVI í HDMI?

Pósturaf hagur » Lau 21. Mar 2009 21:40

Snúran á Computer.is ætti að duga þér. Þú þarft einmitt snúru með karl báðum megin, þar sem tækin eru nú oftast nær með kerlingu.

Sjónvarpið þitt er líka með PC-input, er það þá VGA? Ef svo er, þá gætirðu líka prufað það, ef lappinn er með VGA. Þú átt nú líklega VGA -> VGA snúru liggjandi einhverstaðar, er það ekki? Flestir eiga eina slíka :wink:

En fyrir þennan 1500 kall færðu digital merki alla leið og því mögulega betri gæði.




akarnid
Ofur-Nörd
Póstar: 242
Skráði sig: Lau 04. Nóv 2006 22:35
Reputation: 11
Staða: Ótengdur

Re: Laptop í flatskjá - DVI í HDMI?

Pósturaf akarnid » Lau 21. Mar 2009 23:23

Þetta á alveg að virka, nema þú munt ekki fá hljóð enda ber DVI snúra ekki svoleis.