Síða 1 af 1
Extreme aircooling?
Sent: Mán 24. Nóv 2003 21:35
af Some0ne
http://www.sidewindercomputers.com/swmc1.html
rakst á þetta þarna, væri gaman að sjá hvort að menn myndu prófa þetta vs standard vatnskælingu, miðað við tölurnar þarna þá lítur þetta nokk vel út.
Sent: Mán 24. Nóv 2003 21:51
af Hlynzi
Mér þykir þetta líta út eins og kubbur með snitteinum !
Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:01
af RadoN
þetta notar Peltier..
Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:07
af Hlynzi
Er þetta peltierinn... ?
hlaut að vera
ég vissi að þetta gæti ekki kælt svona vel.
Þeir sem ekki vita þá er þetta keramik kubbur sem hitnar öðrum megin og kólnar hinum megin, heitari hliðina verður að kæla !
Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:20
af elv
Svo þarf líka að kæla peltier. Hann hitnar meira en örrin. Þessi Peltier er yfir 200W en 3200XP AMD er ekki nema um 70W.
Soldið sem þarf að hugsa líka.
Svo er annað það þarf sér aflgjafa fyrir þá líka þar sem flest PSU í tölvunum ráða ekki við þetta
Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:26
af RadoN
fá sér bara 600W PSU
dugar það ekki?
Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:31
af elv
Ekki endilega
Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:33
af RadoN
jæja.. fá sér bara sér ofurhlóðlátt PSU..
en hvað er maður að græða mikið á þessari kælingaraðferð?
ég var eitthvað að lesa um þetta en það var bara eitthvað endalaust eðlistfræði dæmi, þannig að ég hætti bara
Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:38
af elv
Þetta fer langt undir 0c
Var að skoða review um þennan HSF og þeir kveiktu á honum á borðinu og horfðu á allt fara í klaka.
Oftast eru menn að kæla peltier með vatnskælingum.
Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:44
af RadoN
ok, eigum við að prófa þetta með N
2 ?

Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:50
af RadoN
Örgjörvakæling Alveg hljóðlaust, Frábært til að overclocka með, með góðri viftu eða vatnskælingu. -0°C Þarfnast öflugs aflgjafa. A.M.K. 300w
http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=63
Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:52
af elv
Allt of lítil peltier. Hann þarf að vera alveg tvöfalt meira en CPU
Sent: Þri 25. Nóv 2003 20:33
af Bendill
Það er ekki séns að þú náir að kæla niður fyrir frostmark með þessu...
Rafhitapumpur, eins og peltierinn kallast á gömlu íslenskunni, er háður hitamismuninum á milli þessa tveggja flata. Þeir fylgjast oftast að og fer munurinn oftast ekki yfir 35 gráður.
Það er alveg satt það sem Elv segir, þetta skilar meiri hita í heatsinkið en örrinn myndi gera en það kælir hins vegar meira á hinni hliðinni. 226W peltier á loftkælingu er eitthvað sem ég myndi ekki mæla með fyrir byrjendur, nema að vera með Vantec Tornado viftu á heatsinkinu, þar sem þú þarft að vera með dedicated PSU fyrir peltierinn einan (annars væri örugglega stuð að prófa þetta heh..

). Það er vegna þess að venjulegt PSU heldur undir öllum kringumstæðum ekki 12 voltum, sérstaklega undir álagi.
Hérna er góður leiðarvísir frá vönum yfirklukkurum
http://www.themodfathers.com/modfatha/articles/pelts.php
Sent: Þri 25. Nóv 2003 21:29
af elv
Bendill skrifaði:Það er ekki séns að þú náir að kæla niður fyrir frostmark með þessu...
Rafhitapumpur, eins og peltierinn kallast á gömlu íslenskunni, er háður hitamismuninum á milli þessa tveggja flata. Þeir fylgjast oftast að og fer munurinn oftast ekki yfir 35 gráður.
Really

Það getur farið í 70C til 120C mun á stórum Peltierum
Sent: Þri 25. Nóv 2003 21:43
af Bendill
heldurðu að þetta gerist þegar þú setur allt klabbið á örrann? Hann verður aðeins heitari en herbergishiti....
Sent: Þri 25. Nóv 2003 21:44
af elv
Ég veit, stóðst bara ekki þessa mynd
