Síða 1 af 1

Bt dvd skrifarinn???

Sent: Sun 23. Nóv 2003 23:43
af Tesli
Hafiði eitthvað að segja um dvd skrifarann sem færst í bt á 13.900
http://www.bt.is/NR/rdonlyres/easfs23y3pcneygjolkxsso7ag2p32tytlvdeochratdf4uzooqqonlcoclnau4inxlkgf5qzttrdg/BT20nov1.jpg

Ætlaði að skella mér á hann en ákvað að fá álit hjá ykkur fyrst. :D

Sent: Mán 24. Nóv 2003 19:42
af OverClocker
BT menn eru snillingar í að grafa upp einhverjar noname vörur og selja okkur á verði sem við höldum að sé voða góður díll..
Gaman að vita hvað þeir kaupa þetta á...

Sent: Mán 24. Nóv 2003 19:55
af RadoN
þetta hljómar alveg vel.. en spurning hvort þetta sé ekki bara eitthvað algjört rusl?

Sent: Mán 24. Nóv 2003 19:55
af Voffinn
Þetta hljómar mjög mikið þannig RadoN :>

þ.e.a.s. rusl

Sent: Mán 24. Nóv 2003 21:05
af gumol
ég myndi taka þennann gegnum shopusa:
http://tomshardware.bizrate.com/marketp ... 57868.html

Sent: Mán 24. Nóv 2003 21:06
af RadoN
hvað væri heildarverð þegar hann er kominn heim til þín?

Sent: Mán 24. Nóv 2003 21:07
af gumol
undir 20.000 held ég, 16.000 samkvæmt ShopUSA, en þar vantar inní sendikostnaðinn innann USA.

Sent: Mán 24. Nóv 2003 21:13
af Fletch
gumol skrifaði:ég myndi taka þennann gegnum shopusa:
http://tomshardware.bizrate.com/marketp ... 57868.html


Ég er einmitt með þennan LG skrifara, ánægður með hann.. Fékk hann hjá tölvuvirkni

Fletch

Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:21
af GuðjónR
Þeir voru að bjóða Plextor DVD skrifara á 18k um daginn, svartann meira að segja.
Ég er bara tortrygginn í þeirra garð eftir að hafa lent ílla í þeim, veit ekki hvort ég myndi þora að versla þetta hjá þeim.
Stundum er betra að borga aðeins meira fyrir vöruna og vera öruggur með góða þjónustu ef varan bilar eða er gölluð.

Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:28
af gumol
GuðjónR skrifaði:Þeir voru að bjóða Plextor DVD skrifara á 18k um daginn, svartann meira að segja.
Ég er bara tortrygginn í þeirra garð eftir að hafa lent ílla í þeim, veit ekki hvort ég myndi þora að versla þetta hjá þeim.
Stundum er betra að borga aðeins meira fyrir vöruna og vera öruggur með góða þjónustu ef varan bilar eða er gölluð.

Semsagt kaupa hana frá útlöndum í staðin fyrir BT :lol:

Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:30
af RadoN
kaupana í Task, þeir eru með mjög góða þjónustu..
að kaupa hjá þeim er næstum eins og að fá tryggingu :)

Sent: Mán 24. Nóv 2003 22:54
af GuðjónR
Já ég er sammála Radon, Task hefur reynst mjög vel.