Síða 1 af 1
Brenglaður skjár?
Sent: Mið 18. Feb 2009 17:14
af MaggiGunn
Er brenglað að spila CS í 22" widescreen skjá? eða aðra leiki.... bara smá spurn

Ég þekki þetta ekki nógu vel, mig langar í 22" en svo heyrir maður að leikir verði svo asnalegir.
Annars er það 19-20" ekki widescreen.
Re: Brenglaður skjár?
Sent: Mið 18. Feb 2009 18:26
af Hyper_Pinjata
Njah...myndi efa það....bara setur á hærri upplausn....ég hef allavega hingað til alltaf notað 1280x1024 eða hærra...
spila CS 1.6 í 1440x900....lýtur svosum ekkert verr út...
Re: Brenglaður skjár?
Sent: Mið 18. Feb 2009 18:37
af TwiiztedAcer
MaggiGunn skrifaði:Er brenglað að spila CS í 22" widescreen skjá? eða aðra leiki.... bara smá spurn

Ég þekki þetta ekki nógu vel, mig langar í 22" en svo heyrir maður að leikir verði svo asnalegir.
Annars er það 19-20" ekki widescreen.
Þeir verða ekkert Asnalegri
Ég er nú sjálfur með 22 og finnst mér bara mjög fínir
22 eru flestir með núna dags og eru geðveikir
Hvaða skjá ertu að pæla í?
Re: Brenglaður skjár?
Sent: Mið 18. Feb 2009 19:11
af dori
Ertu ekki að spurja hvort leikir verði asnalega teygðir ef þú spilar á widescreen skjá og upplausnin er ekki fyrir widescreen?
Re: Brenglaður skjár?
Sent: Mið 18. Feb 2009 19:30
af KermitTheFrog
Ef þú spilar leik á 22" widescreen skjá í 1280x1024, þá brenglast þetta. En ef þú aftur á móti ef þú stillir hann í native resolution eða þá bara widescreen upplausn þá er þetta bara æði
Re: Brenglaður skjár?
Sent: Mið 18. Feb 2009 20:42
af Hyper_Pinjata
KermitTheFrog skrifaði:Ef þú spilar leik á 22" widescreen skjá í 1280x1024, þá brenglast þetta. En ef þú aftur á móti ef þú stillir hann í native resolution eða þá bara widescreen upplausn þá er þetta bara æði
Actually....Nei....Flestir góðir skjáir nú til dags "Aðlaga" sig að upplausninni.....
Acer skjárinn minn gerir það allavega...
Re: Brenglaður skjár?
Sent: Mið 18. Feb 2009 21:55
af Ezekiel
Hyper_Pinjata skrifaði:KermitTheFrog skrifaði:Ef þú spilar leik á 22" widescreen skjá í 1280x1024, þá brenglast þetta. En ef þú aftur á móti ef þú stillir hann í native resolution eða þá bara widescreen upplausn þá er þetta bara æði
Actually....Nei....Flestir góðir skjáir nú til dags "Aðlaga" sig að upplausninni.....
Acer skjárinn minn gerir það allavega...
wat
allir lcd skjáir eru með native upplausn hvort sem það sé 1680x1050, 1440x900 eða eitthvað annað, og ef að þú víkur frá þessari upplausn þá ertu að fórna gæðum, þótt að skjáir geta sett aðra upplausn þá hef ég aldrei heyrt um "aðlaga sig að upplausninni"
Re: Brenglaður skjár?
Sent: Mið 18. Feb 2009 22:22
af hagur
Það er rétt hjá aczeke.
Það sem gerist þegar þú setur LCD skjá í aðra upplausn en hans "fixed", "native" upplausn getur verið tvennt:
1. Skjárinn skalar myndina yfir á sína native upplausn. Ef upplausnin er hærri en native, þá gerir down-scalar hann upplausnina, annars up-scalar hann. Þetta hefur í för með sér tap á myndgæðum, óumflýjanlega. Sérstaklega ef þú setur widescreen skjá í 4:3 upplausn eða 4:3 skjá í widescreen upplausn, þá bætist bjögun ofaná skölunina.
2. Ef upplausnin er lægri en native, þá birtist myndin bara á miðjum skjánum í réttri upplausn með svartan ramma í kring.
Langflestir skjáir fara leið númer 1. Hugsa að leið 2 sé algengari í sjónvörpum.
Re: Brenglaður skjár?
Sent: Fim 19. Feb 2009 05:47
af MaggiGunn
jú er einmitt að spá hvort þeir verði teygðir og asnalegir. En ég er að spá i þessum 22" benq, mæla allir með honum.
En fyrst þetta er allt í góðu og ekkert brenglað, þá tekur maður auðvitað frekar 22" heldur en 19".
Re: Brenglaður skjár?
Sent: Fim 19. Feb 2009 09:11
af hagur
Ef að leikurinn býður uppá widescreen upplausn, þá sérstaklega native upplausnina á skjánum, þá verður þetta bara flott. Go for it
