Síða 1 af 1
Að overclocka ?
Sent: Fös 06. Feb 2009 16:49
af Glazier
Sko ég er með Ge-Force 9600 GT og langar að overclocka það.
Er eitthver hérna sem getur leiðbeint mér ?
Og langar líka að Overclocka örrann minn hann er AMD 2,5 GHz

ef eitthver getur leiðbeint mér þá er það vel þegið

Re: Að overclocka ?
Sent: Fös 06. Feb 2009 16:51
af gRIMwORLD
Byrjaðu á því að segja hvernig móðurborð, minni, örgjörva og skjákort þú ert með (frá hvaða framleiðanda)
Þarf aðeins meira en AMD 2,5GHz

Re: Að overclocka ?
Sent: Fös 06. Feb 2009 17:10
af Glazier
Móðurborð: Abit KN9 SLI
Skjákort: Ge-Force 9600 GT
Vinnsluminni 2 GB (get bætt við 2)
Örgjörvi: AMD 4800 2,5 GHz
eitthvað meira ?
Re: Að overclocka ?
Sent: Fös 06. Feb 2009 17:14
af Allinn
Aflgjafi?
Re: Að overclocka ?
Sent: Fös 06. Feb 2009 17:56
af Glazier
Allinn skrifaði:Aflgjafi?
400w
Re: Að overclocka ?
Sent: Fös 06. Feb 2009 18:03
af Hyper_Pinjata
myndi ekki overclocka með 400w aflgjafa....ég er með "tölvuna í undirskriftinni" og hún er á 430w aflgjafa....og ég er nokkuð tæpur á því að hann sé að duga

Re: Að overclocka ?
Sent: Fös 06. Feb 2009 18:06
af Ezekiel
Þú ættir nú helst að sleppa því að klukka ef að þekkingin þín er af svona skornum skammti, láta einhvern vin þinn leiðbeina þér frekar eða lesa þig vandalega til um þetta.
Þetta er ekki svo simplet að hækka bara aflið á GPU svo að það afkasti meira, þú þarft að gera ráð fyrir hitavandamálum og allskonar veseni sem fylgir þessu.
Re: Að overclocka ?
Sent: Mán 09. Feb 2009 12:44
af Glazier
jájá ég geri mér nú allveg grein fyrir því að hitinn á eftir að hækka en þessvegna var ég að spá í að fá mér nýja örgjörva kælingu.. fara úr þessari:
http://kisildalur.is/?p=2&id=736yfir í þessa:
http://kisildalur.is/?p=2&id=574svo líka ég er með Ge-Force 9600 GT skjákort og vinur minn er með allveg eins og hann er með það overclockað í rétt tæp 2 GB og mig langar að gera það líka

Re: Að overclocka ?
Sent: Mán 09. Feb 2009 12:50
af Matti21
Glazier skrifaði:svo líka ég er með Ge-Force 9600 GT skjákort og vinur minn er með allveg eins og hann er með það overclockað í
rétt tæp 2 GB og mig langar að gera það líka


Já ég verð að segja að ég mæli sterklega með því að þú fáir einhvern annan til þess að gera þetta fyrir þig

Re: Að overclocka ?
Sent: Mán 09. Feb 2009 13:00
af Ezekiel
haha
ég verð að vera sammála fyrri ræðumanni

Re: Að overclocka ?
Sent: Mán 09. Feb 2009 15:51
af Glazier
aczeke skrifaði:haha
ég verð að vera sammála fyrri ræðumanni

hringdi í kísildal áðan og var að spurja um þetta og þeir ætla að gera þetta fyrir mig..
Ég kaupi þessa örgjörvakælingu (er hún ekki góð?):
http://kisildalur.is/?p=2&id=574Og svo kaupi ég þennan aflgjafa:
http://kisildalur.is/?p=2&id=690Og þeir overclocka fyrir mig og skipta um aflgjafann og kælinguna fæ þetta á samtals 20 þús.
er það ekki góður díll ?
er eitthvað annað sem þið getið mælt með ?
Re: Að overclocka ?
Sent: Mán 09. Feb 2009 16:00
af coldcut
það er reyndar fínn díll sko...ert að borga rétt svo þúsund kall fyrir overclockið!
Re: Að overclocka ?
Sent: Mán 09. Feb 2009 16:31
af vesley
Glazier skrifaði:jájá ég geri mér nú allveg grein fyrir því að hitinn á eftir að hækka en þessvegna var ég að spá í að fá mér nýja örgjörva kælingu.. fara úr þessari:
http://kisildalur.is/?p=2&id=736yfir í þessa:
http://kisildalur.is/?p=2&id=574svo líka ég er með Ge-Force 9600 GT skjákort og vinur minn er með allveg eins og hann er með það overclockað í rétt tæp 2 GB og mig langar að gera það líka

það er ekki hægt að yfirklukka minnið á skjákorti .. 512mb er bara alltaf 512mb þannig það sem vinur þinn sagði var algjör steypa..
þú yfirklukkar minnsihraða og klukkuhraðann á kortinu
