Síða 1 af 1

Breidd minnisbrautar ?

Sent: Mið 28. Jan 2009 23:52
af TwiiztedAcer
Breidd minnisbrautar : 128-Bit og 256-Bit
Hvað gerir þetta drezl? skiptir þessi Bit eitthvað máli?

hver er munurinn á 128 bit og 256 bit?
hvor er betra?
afhverju?

Re: Breidd minnisbrautar ?

Sent: Fim 29. Jan 2009 01:50
af Selurinn
Fjöldi bita sem sendir eru á hverjum klukkupúls frá minninu. Minnisbandbreiddin ræðst af hvoru tveggja breidd minnisbrautar og minnishraðanum. Eftir því sem kort eru öflugri er þörf á meiri bandbreidd til að þau geti unnið á fullum afköstum.

Og afhverju það er betra?
Vegna þess að 512mb er betra en 256mb, 3ghz er betra en 2.5ghz. You do the math!