Síða 1 af 1
Hvað fæ ég fyrir þessa hluti?
Sent: Mið 21. Jan 2009 23:35
af Ezekiel
Sælir,
Ég er hérna með
svona kassa og
svona örgjörva sem ég var að hugsa mér að selja því ég ætla að uppfæra þessa tvo hluti í vélinni minni, hvað haldið þið ágætu sjentelmen að ég fengi margar spírur fyrir þetta?
Takk.
Re: Hvað fæ ég fyrir þessa hluti?
Sent: Mið 21. Jan 2009 23:42
af jonsig
Ég mundi áætla 6-7k fyrir kassan og 5-6 fyrir örran hann er orðin nokkuð úreltur, nýr mundi hann kosta 10-12k í dag ef hann væri til sölu
Re: Hvað fæ ég fyrir þessa hluti?
Sent: Mið 21. Jan 2009 23:44
af KermitTheFrog
Ef þú ert bara með kassann án aflgjafa þá myndi ég segja svona 4-5k
Re: Hvað fæ ég fyrir þessa hluti?
Sent: Mið 21. Jan 2009 23:52
af jonsig
Meina , , notað psu , hafa menn aldrei heyrt um Capacitor Aging . í stuttu máli innraviðnám aflgjafa eykst með tímanum og eftir 2 ár undir ágætu álagi búnir að droppa um 50% í Watta tölu
Re: Hvað fæ ég fyrir þessa hluti?
Sent: Fim 22. Jan 2009 01:24
af Manager1
jonsig skrifaði:Meina , , notað psu , hafa menn aldrei heyrt um Capacitor Aging . í stuttu máli innraviðnám aflgjafa eykst með tímanum og eftir 2 ár undir ágætu álagi búnir að droppa um 50% í Watta tölu
Ég ætla að leyfa mér að efast um þetta. Þó ég hafi aldrei heyrt um "capacitor aging".
Er semsagt líftími PSU bara 4 ár? Eða eykst viðnámið ekki um 50% í viðbót á þriðja og fjórða ári?
Re: Hvað fæ ég fyrir þessa hluti?
Sent: Fim 22. Jan 2009 09:56
af Daz
http://www.extreme.outervision.com/psucalculatorlite.jsp skrifaði: Electrolytic capacitor aging. When used heavily or over an extended period of time (1+ years) a power supply will slowly lose some of its initial wattage capacity. We recommend you add 10-20% if you plan to keep your PSU for more than 1 year, or 20-30% for 24/7 usage and 1+ years.
Þarna er verið að tala um 24/7 notkun. Þykir mér þetta líklegri tala en 50% sem jonsig tjáir sig um.
Re: Hvað fæ ég fyrir þessa hluti?
Sent: Fim 22. Jan 2009 10:08
af CendenZ
furðulegt að í servernum mínum er 5 ára gamalt 350w PSU.
Samt virkar það eins og þegar ég keypti það.
Reyndar hafa tölvuvörur orðið gæðaminni með tímanum, í dag er tölvubúnaður og rafmagnsbúnaður með minni gæði en í gamla daga, auðvitað svo þú kaupir meira og meira og meira

Re: Hvað fæ ég fyrir þessa hluti?
Sent: Fim 22. Jan 2009 12:54
af gRIMwORLD
Gæði og ending á hlutum er meiri í dag en áður en þú þarft að eyða meiri pening í gæðavörur í dag en fyrir nokkrum árum. Getur alltaf keypt "crapp" fyrir kúk og kanil.
Re: Hvað fæ ég fyrir þessa hluti?
Sent: Fös 23. Jan 2009 19:42
af jonsig
Manager1 skrifaði:jonsig skrifaði:Meina , , notað psu , hafa menn aldrei heyrt um Capacitor Aging . í stuttu máli innraviðnám aflgjafa eykst með tímanum og eftir 2 ár undir ágætu álagi búnir að droppa um 50% í Watta tölu
Ég ætla að leyfa mér að efast um þetta. Þó ég hafi aldrei heyrt um "capacitor aging".
Er semsagt líftími PSU bara 4 ár? Eða eykst viðnámið ekki um 50% í viðbót á þriðja og fjórða ári?
Kemur mér ekki að óvart , það eru bara fagmenn í rafgeiranum sem vita þetta, þetta er ekkert kennt í grunnskóla. kanski 50% er dálítið ýkt en það er samt ,,, nokkuð há tala
Re: Hvað fæ ég fyrir þessa hluti?
Sent: Fös 23. Jan 2009 20:02
af Manager1
Mér sýnist á öllu að þessi 50% þín séu ýkt alveg slatta, þ.e. að capacitor aging sé ekki nema 20-40% á tveimur árum m.v. textann sem Daz póstaði.