Síða 1 af 1

Radeon 9600 pro

Sent: Þri 11. Nóv 2003 23:57
af ^Soldier
Langar að spurja ykkur að svolitlu og að deila með ykkur sorgarsögu minni. Ég keypti mér 1 stk. Radeon 9600pro 128mb skjákort á 20.000 kr. Áður fyrr var ég með GeForce Ti4200 64mb kort sem ég þurfi að skila til eigandans.

En ég er með 1.8 Ghz P4 örgjörva, 512 mb minni, 80gb harðan disk sem er nóg pláss inná og þetta Radeon kort. Samt er ég að fps droppa í cs 1.5 alveg niður í 70 fps og meira í 1.6!
Áður fyrr var ég með stöðugt 100fps í cs1.5 og var þá með þetta GeForce kort.

Ég er að spá hvort þetta Radeon kort eigi að vera svona lélegt sem ég hef litla trú á. Ég er búinn að taka vertical synk af og var að pæla hvort það séu fleiri stillingar sem ég geti breytt til að þetta skáni.

Það eru kannski ekki allir meðvitaðir um þetta fps í cs en þeir sem vita eitthvað um þetta, endilega save me!

(afsakið stafsetningavillur mínar)

Sent: Þri 11. Nóv 2003 23:58
af ^Soldier
Ákvað að láta könnunina bara fljóta með ;)

Sent: Mið 12. Nóv 2003 00:01
af aRnor`
ertu ekki kominn með rétta driverinn fyrir kortið?

Sent: Mið 12. Nóv 2003 00:04
af ^Soldier
Ég downlodaði Catalyst 3.7 á þessari síðu http://www.fps.is/drivers.asp

Sent: Mið 12. Nóv 2003 00:28
af Arnar
Hmm.. ég var líka með stöðugt 100fps í 1.5 og niður í 70fps í 1.6.

En það sem ég hef heyrt og held að sé rétt er að fps í cs sé fyrst og fremst undir örranum komið!

Sent: Mið 12. Nóv 2003 01:06
af gumol
eruð þið með stöðugt 70 fps eða á milli t.d. 60 - 80 fps?

Mér dettur helst í hug v-sink

Sent: Mið 12. Nóv 2003 01:11
af kemiztry
lol það er bara eðlilegt að droppa massíft í CS1.6 :)

Sent: Mið 12. Nóv 2003 01:13
af gumol
arnar: búinn að gera fps_max 300 ?

Sent: Mið 12. Nóv 2003 01:49
af RadoN
ég myndi sækja drivera á ati.com, en ekki einhverri annari síðu

Sent: Mið 12. Nóv 2003 12:50
af MezzUp
er ekki örugglega anti-analising og anisotropic filtering á off?

Sent: Mið 12. Nóv 2003 15:42
af odinnn
Radon: það er allt í lagi með þessa drivera á fps.is, ég er að nota þá og allt í fína plús þá er þetta innanlands.

en ég held að þetta sé eins og gumol segir að það þarf að gera max_fps 101 til að leikurinn sýni meira en hz-in á skjánum leifa því leikurinn stillir sig inná skjáinn og sync-ar hann við fps. það er nóg að skrifa 101 því net_graph 3 sínir ekki meira en 100 í fps. prófaðu að skrif timerefresh (man ekki hvernig það er skrifað gerðu bara time og svo TAB) í byrjun rounds og gáðu hvaða fps þú færð.

ég var með stable 75fps með mitt Radeon 9800 Pro þangað til ég gerði max_fps 101

Sent: Mið 12. Nóv 2003 23:29
af ^Soldier
MezzUp skrifaði:er ekki örugglega anti-analising og anisotropic filtering á off?


Ekki svo ég viti, hvað er það annas?

Sent: Mið 12. Nóv 2003 23:34
af ^Soldier
kemiztry skrifaði:lol það er bara eðlilegt að droppa massíft í CS1.6 :)


Já það er alveg satt, en mér finnst aðalega skrítið að ég sé að droppa í 1.5 sem ég var ekki vanur að gera með "verra" skjákort.