Síða 1 af 1
Phase LED á Gigabyte móðurborði
Sent: Mán 05. Jan 2009 21:55
af KermitTheFrog
Vinur minn var að fá sér
svona móðurborð og þegar hann reynir að kveikja á henni þá fara viftur af stað í svona 2 sec og þá rebootar tölvan og þetta gerist bara aftur og aftur.. Svo eru einhver LED ljós á móðurborðinu sem heita PHASE LED og í manualnum segir að þau tákni CPU load eða eitthvað þannig (er að downloada manualnum til að checka á þessu)
Hvað getur þetta verið?? Örrinn ekki að fá nógan straum úr aflgjafa eða hvað??
Re: Phase LED á Gigabyte móðurborði
Sent: Mán 05. Jan 2009 22:19
af Gúrú
KermitTheFrog skrifaði:nógan
"nægan"
Einhver annar hjálpar þér með hitt samt, ég er í stafsetningardeild.
Re: Phase LED á Gigabyte móðurborði
Sent: Mán 05. Jan 2009 22:25
af Selurinn
Búinn að tengja 4 pinna plöggið fyrir örran
Re: Phase LED á Gigabyte móðurborði
Sent: Mán 05. Jan 2009 22:28
af KermitTheFrog
Það er allt tengt sem á að vera tengt
EDIT: Þetta segir manuallinn um PHASE LED: The number of lighted LEDs indicates the CPU loading. The higher the CPU loading, the more the number of lighted LEDs.
Hérna er manuallinn:
http://europe.giga-byte.com/FileList/Ma ... ep45-ds3(r)_e.pdf
Re: Phase LED á Gigabyte móðurborði
Sent: Þri 06. Jan 2009 00:45
af Zorglub
Gúrú skrifaði:KermitTheFrog skrifaði:nógan
"nægan"
Einhver annar hjálpar þér með hitt samt, ég er í stafsetningardeild.
Eigum við þá líka að fara í málfræðipælingar og ræða hvort orðinu "samt" sé ekki ofaukið í setningunni hjá þér og hvort þú sért ekki í
stafsetningardeild
inni.

ps. Svo er það nægan
n
En að öllu gríni slepptu þá gæti þetta verið galli í bios í borðinu, eða voruð þið nokkuð að uppfæra?
Re: Phase LED á Gigabyte móðurborði
Sent: Þri 06. Jan 2009 08:27
af KermitTheFrog
Nennir einhver að hjálpa mér með vandann please?
Re: Phase LED á Gigabyte móðurborði
Sent: Þri 06. Jan 2009 16:24
af Zorglub
Tja þess vegna spurði ég hvort þið hafið verið að flassa eða hvort að borðið hefur ekki ræst sig yfir höfuð.
Ef það hefur ekki ræst sig, þá er bara að aftengja diska og drif, víxla/skipta út minnum, skjákorti, aflgjafa og útiloka alla möguleika.
Ef ekkert virkar, þá eins og ég sagði hér fyrir ofan myndi ég giska á galla í bios=gallað borð=skila.
Re: Phase LED á Gigabyte móðurborði
Sent: Fös 09. Jan 2009 00:33
af KermitTheFrog
Tjah, það var nú soldið skondið að við prufuðum að taka CPU úr socketinu og þá náði allt að fara í gang (viftur n'such).. Gallaður örgjörvi??
Hann er samt ekki jafnþolinmóður og ég og ákvað að fara með hana og láta TechHead og fleiri um þetta (fór semsagt með þetta í Tölvuvirkni)