Miðað við þína lýsingu “Inputið fyrir headfone er laus og það heyrist bara öðrum megin nema eg haldi því föstu..” þá er tengillinn einfaldlega laus og engin þörf á að skipta um hljóðkortið.
Það sem hefur gerst er að lóðning hefur losnað á tenglinum við hljóðkortið eða jafnvel tengipinni á tenglinum brotnað af, þarf þá að skipta um tengil og lóða nýjan við hljóðkortið, svona tengill kostar bara nokkur hundruð krónur það er bara vinnan við þetta sem telur.
Þú átt tvo valkosti í þessu, láta gera við þetta og vera þar með laus við allt utanáliggjandi.
Ég set hér dæmi um kostnað sem mér finnst líklegur við það verk en það er lágmark einn tími og hámark tveir tímar, það er að segja að þessi bilanagreining standist.
Vísa hér á verðdæmi á verkstæði
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... ad_topnav=ÞJO_Vinna
sem gefur hugmynd um kostnað sem gæti verið þessu samfara og miðað við tveggja tíma vinnu eru þetta þá 11.720 kr + tengillinn ef skipta þarf um hann.
Hinnsvegar ef að þú sættir þig við eitthvað utanáliggjandi þá er þetta
http://tb.is/?gluggi=vara&vara=1429 mjög ódýr fljótleg og þægileg lausn á málinu, getur að sjálfsögðu farið í dýrari og flottari utanáliggjandi hljóðkort ef að þú vilt tengja stór og öflug hljóðkerfi við tölvuna.