Síða 1 af 1

Radeon9800ProXT 226MB

Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:34
af Fox
Radeon9800ProXT 226MB .. þetta er á VGA .. finnst þetta furðulegt.

Og afhverju VGA? það eru flestir í dag XVGA

Sent: Þri 11. Nóv 2003 16:34
af ICM
Afhverju á þetta heima inni á Allt varðandi vaktin.is og afhverju er það 226MB en ekki 256? Síðan eru flest skjákort með DVI tengi sem auka, ekki primary svo það er ekki skrítið að einhver kort séu ennþá bara með VGA þar sem það kostar minna og ástæðulaust að eyða í DVI ef maður á góðan CRT skjá. Annars ættu að fara að koma fleiri DVI only kort þar sem hægt er að setja VGA millistykki í þau.

Sent: Þri 11. Nóv 2003 17:00
af Arnar
Hver er munurinn á VGA og DVI?

Hver er ávinningurinn á DVI og er DVI einungis fyrir flatskjái eða?

Sent: Þri 11. Nóv 2003 17:06
af ICM
Arnar:
VGA er analog tengi og DVI er digital svo nei þú græðir ekkert á því ef þú ert með CRT. Enn í dag er minnihluti af LCD skjáum komnir með DVI tengi.

Sent: Þri 11. Nóv 2003 17:32
af kiddi
VGA - Video Graphics Array

VGA er eitthvað sem allir þekkja sem samnefnara fyrir tölvuskjái.

Hitt eru klaufavillur frá okkur, sem verður lagað! =)