Síða 1 af 1

Örgjörva kæling

Sent: Fim 11. Des 2008 19:06
af dezeGno
Sælir.

Er að leita mér af öflugri örjörva kælingu sem passar í Antec P190 kassann og fer ofan á Intel Core 2 Duo E6750. Komast ekki allar fyrir í kassanum vegna þess að það er stór 200mm vifta á hliðinni.
Myndi það meika sens að taka þá kælingu sem tæki beint loft sem kemur frá stóru viftunni á hliðinni og nýtir það á örran?

Líst mjög vel á þessar fjórar:
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_75_76&products_id=613
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_75_76&products_id=1041
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_75_76&products_id=591
http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=24_75_76&products_id=1250

En ég er samt ekki viss um að þær komist í kassann, hef áhyggjur af því að þær séu of stórar. Einhver sem getur sagt mér eitthvað um það og mælt þá með einhverri sem passar?

Re: Örgjörva kæling

Sent: Fim 11. Des 2008 19:20
af ManiO
Mér skilst að þú kemur ekki fyrir 120mm og stærri kælingum fyrir í þessum kassa.

Re: Örgjörva kæling

Sent: Fim 11. Des 2008 19:26
af dezeGno
Þannig að eina kæling sem ég gæti notað af þeim sem að ég póstaði væri hermaltake Ruby Orb? Einhver með einhverja sambærilega eð betri kælingu sem ég ætti frekar að taka í staðinn fyrir hana?

Re: Örgjörva kæling

Sent: Fim 11. Des 2008 19:30
af Gúrú
Skíttoglaggó umræða um þetta átti sér stað hér

Re: Örgjörva kæling

Sent: Fim 11. Des 2008 19:51
af Gets
Ég er með þessa kælingu http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=963

Og þetta millistykki http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=884

Samtals kostnaður uppá 2.981 kr.

Ég er með þessa kælingu á Intel core 2 duo 6750 sem er stock @ 2.66 MHz
og er með hann yfirklukkaðan í 3.0 GHz

Hitastigið á honum yfirklukkuðum í 3.0 GHz er samkvæmt SpeedFan 4.33

29 gráður í idle og rétt tæpar 45 gráður í load.

Re: Örgjörva kæling

Sent: Fim 11. Des 2008 21:23
af dezeGno
Flott, er nefnilega að leita af góðri kælingu vegna þess að það er búið að koma örranum í 3.2GHz :D en hann er of heitur á stock kælingu.