Síða 1 af 1
Hitastigs spurningar
Sent: Mán 08. Des 2008 17:01
af FreyrGauti
Sælir, er að pæla hvort hitastigin sem tölvan er að gefa mér upp séu eðlileg.
Er með Asus Maximus Formula móðurborð, E8400 örgjörva og er með Zalman 9500 kælingu á honum. Þetta er síðan í CoolerMaster CM690 kassa með 5 120mm viftum.
PcProbe frá asus gefur upp þessi hitastig: CPU 49, MB 34, NB 41, SB 42
SpeedFan gefur: CPU 49, System 33, Core0 60, Core1 60
Er þetta eðlilegt eða er þetta í ruglinu?
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Mán 08. Des 2008 17:08
af Sydney
Þetta eru fínir load tempar, en SKELFILEGIR idle tempar.
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Mán 08. Des 2008 17:13
af FreyrGauti
Já gleymdi að taka fram að þetta er idle.
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Mán 08. Des 2008 17:25
af Sydney
Er kælikremið rétt sett á? Er kælingin öruggulega föst, þ.e.a.s. hámarks þrýstingur beint á heatspreader? Er einhver yfirklukkun?
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Mán 08. Des 2008 17:27
af Pandemic
Sydney skrifaði:Þetta eru fínir load tempar, en SKELFILEGIR idle tempar.
sé ekkert að þessu. mínir eru að idle á svipuðu hitastigi.
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Mán 08. Des 2008 17:33
af KermitTheFrog
Ég er með E8400 og hann var að keyra í idle á um 45-50° og í load svona 60° á stock kælingunni.. Er að keyra hann núna í 35° idle með Xigmatek Achilles
Það getur verið að kælingin sé ekki nógu vel sett á
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Mán 08. Des 2008 17:39
af Pandemic
sá reyndar núna core temp hjá þér og það er soldið skuggalegt.
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Mán 08. Des 2008 17:57
af Pandemic
mæli með þessari grein fyrir þá sem vilja vita nákvæmlega hvernig tölvan hjá þeim er að haga sér á hundraðinu
http://www.tomshardware.co.uk/forum/221745-11-core-quad-temperature-guide
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Mán 08. Des 2008 19:44
af Sydney
Ég meina, come on, ég keyri E6600 yfirklukkaðan í 3.5GHz í 50°C load, 30°C idle, það er eitthvað að hjá kælingunni hans.
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Mán 08. Des 2008 21:44
af FreyrGauti
Já, er með articsilver5 og það er sett á eftir leiðbeiningum á síðunni hjá þeim, kælingin er sett á eftir zalman leiðbeiningunum en finnst hún samt ekki vera nógu föst, þetta er eitthvað smellusystem. Síðan breytist hitastigið ekkert sama á hvaða hraða viftan er stillt. Örrinn er ekki yfirklukkaður.
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Mán 08. Des 2008 21:53
af KermitTheFrog
Heatsinkið er ekki nógu vel fast
Þú verður að þrýsta á og snúa.. Taktu heatsinkið af og skoðaðu hvernig þetta virkar ef þú ert ekki viss.. Var í vandræðum með þetta fyrst líka
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Þri 09. Des 2008 01:04
af FreyrGauti
Þrýsta á og snúa já...bara til að vera viss, ertu með þetta festingarsystem?
http://www.zalman.com/ENG/product/Produ ... sp?Idx=277Annars var ég að pæla, speedfan sýnir tvö örgjörva sem hún kallar cpu, annar er með winbond... í chip og bus = ISA, hinn er með chip = ADT7475 og bus = intel SMBus...er þessi seinni fyrir skjákortið? spyr vegna þess að hún sýnir hvergi GPU og þeir sýna mismunandi hitastig.
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Þri 09. Des 2008 01:57
af KermitTheFrog
FreyrGauti skrifaði:Þrýsta á og snúa já...bara til að vera viss, ertu með þetta festingarsystem?
http://www.zalman.com/ENG/product/Produ ... sp?Idx=277Annars var ég að pæla, speedfan sýnir tvö örgjörva sem hún kallar cpu, annar er með winbond... í chip og bus = ISA, hinn er með chip = ADT7475 og bus = intel SMBus...er þessi seinni fyrir skjákortið? spyr vegna þess að hún sýnir hvergi GPU og þeir sýna mismunandi hitastig.
Nei.. Þetta er ekki það festingarsystem.. Hélt þú værir með 775 socket
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Þri 09. Des 2008 10:05
af TechHead
Fyrstu batchin af E8200/E8400/E8500 örgjörvunum voru öll með Temp Sensor errata bug í sér.
Reddaðu þér laser hitamæli og mældu hitann við botn kælingunnar, held að þú sért að fá upp vitlausann temp á örgjörvanum frekar en að kælingin sé rangt sett á.
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Þri 09. Des 2008 10:19
af FreyrGauti
Kermit: Þetta er 775 sökkull, ef þú horfir aftur á myndbandið sérðu það.
TechHead: Já maður athugar hvort einhver geti lánað manni svoleiðis græju.
En hafiðið einhverjar skoðanir á hinni spurningunni, þessa tvo mismunandi cpu sem speedfan sýnir þarna?
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Þri 09. Des 2008 10:22
af TechHead
FreyrGauti skrifaði:En hafiðið einhverjar skoðanir á hinni spurningunni, þessa tvo mismunandi cpu sem speedfan sýnir þarna?
Ef þú ert að tala um Core #0/#1 þá er þetta einfaldlega útreiknaður hiti á sitthvorum kjörnunum í örgjörvanum útfrá Tjunction hita og nema á móðurborði
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Þri 09. Des 2008 10:28
af FreyrGauti
TechHead skrifaði:FreyrGauti skrifaði:En hafiðið einhverjar skoðanir á hinni spurningunni, þessa tvo mismunandi cpu sem speedfan sýnir þarna?
Ef þú ert að tala um Core #0/#1 þá er þetta einfaldlega útreiknaður hiti á sitthvorum kjörnunum í örgjörvanum útfrá Tjunction hita og nema á móðurborði
Nei þetta er ekki Core0,Core1, þeir gefa báðir í kringum 60°, það eru tveir staðir sem gefið er upp CPU, annar sýnir 49-50° eins og pcprobe forritið frá asus, hinn sýnir 41-43°.
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Þri 09. Des 2008 14:55
af Páll
Hvaða forrit notast maður við þegar maður er á ubuntu ?
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Þri 09. Des 2008 15:11
af Vaski
Pallz skrifaði:Hvaða forrit notast maður við þegar maður er á ubuntu ?
lm-sensors og hddtemp til að sjá hitan á hörðudiskunum hjá þér. Ef þú ert að nota conky getur þú látið hann birtar þessar tölur sem sensors kemur með.
Re: Hitastigs spurningar
Sent: Fim 11. Des 2008 10:18
af FreyrGauti
Jæja setti upp pc wizard 2008 til að sjá hvaða hita það væri að mæla. Komu nokkuð jákvæðari core hitatölur eða í kringum 45°, gaf samt áfram upp í kringum 50° í örrgjörvahita.
En veit einhver hvaða auka cpu skynjari þetta er sem speedfan finnur, og nei ég er ekki að tala um core0, core1.