Síða 1 af 1

Memory Clock Speed

Sent: Fös 14. Nóv 2008 09:28
af bjornvil
Sælir

Er að vesenast í vél sem er með 1,5GB af vinnsluminni. Kubbarnir eru 1GB + 512MB DDR400 og eftir því sem ég veit best ætti það þá að keyra á 400mhz.

Nú tók ég eftir í memory testinu þegar hún bootar upp að memory clock speed er 166mhz. Ég sótti CPU-Z sem sýndi mér sama, að minnið er að keyra á 166mhz.

Móðurborðið er eitthvað MSI/Nvidia borð, samkvæmt manualnum á það að styðja DDR400 minni. Örgjörvinn er AMD Athlon 64 3000+.

Afhverju er minnið bara að keyra á 166mhz? Er það eðlilegt? Er hægt að breyta því?

Re: Memory Clock Speed

Sent: Fös 14. Nóv 2008 11:11
af Selurinn
Minnið er í raun að keyra á 333mhz (2x166mhz), DDR stendur jú fyrir Double Data Rate.
Annars getur verið að móðurborðið styðji ekki hærri BUS.
Þannig að þú villt jú að minnið keyri þá á 200mhz, checkaðu BIOSinn.
Svo getur náttúrulega verið að minnið keyrir sig niður þegar þessir tveir kubbar keyra saman af óútskýranlegum ástæðum :S