Síða 1 af 1
Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Mán 10. Nóv 2008 17:12
af Lífið er ljúft
Sæl verið þið.
Ég þarf að fá mér tölvuskjá, kemst ekki í tölvubúð og þarf að láta senda mér í pósti. Er að skoða á netinu 22" skjá á verði sem ég ræð við, en það er talað um 800:1 skerpu á honum. Er það ekki allt í lagi, til að skoða ljósmyndir og netið? Ætla ekkert í grafíska hönnun eða þessháttar : ) Eða hvað? Vil ekki heldur fá skjá þar sem allt er í móðu *bros*.
Kveðja
Ljúfa.
............\lll/............
...........(o o)...........
----ooO-(_)-Ooo----
............................
Þá fyrst, ef maður reynir að þóknast öllum... þá þóknast maður ekki neinum ; )
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Mán 10. Nóv 2008 18:07
af CendenZ
Það er nú lágmark að koma með slóðina á skjáinn.
komdu með slóð og verðþak hjá þér. hvað ertu til í að borga ?
800:1 skerpa er ekkert sérstakt. dugar alveg fyrir basic.
en sjáðu til, þú gætir fengið mikið betri skjá fyir kannski 2-5 þús kall meiri pening og þá í betri skjá
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Mán 10. Nóv 2008 18:28
af Lífið er ljúft
Tja, það er nú ekkert ferlega virðuleg slóð : ) En, það er semsagt þessi skjár sem ég er að velta fyrir mér:
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... goryid=809Eða með öðrum orðum, Dell 22'' LCD skjár
E228WFP
hjá Elko.
Mig langar einfaldlega í sem bestan skjá fyrir sem minnst *bros*. Ég nota tölvuna stundum allt upp í 7-8 tíma á dag við vinnu heima (rek heimasíðu og þarf að vinna við hana, svara tölvupóstum, fiffa ljósmyndir oþh.) svo ég þarf skjá sem sýnir nokkuð vel ljósmyndir og sem maður þreytist ekkert yfir meðallagi við að sitja við. Er uppþornaður leikjaalki svo það þarf ekkert að virka sérstaklega vel í leiki. Hef gúglað skjáinn og hann virðist fá nokkuð góða gagnrýni. Þó er kvartað undan að litir séu ekki nógu góðir og þá er ég hrædd um að myndvinnsla gæti verið ekki nógu góð hjá mér ; )
Svo er Fujitsu Siemens 22'' LCD skjár
D22W1T
á
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... goryid=80940-45.000 isk eru eiginlega alger sársaukamörk hjá mér, en ég veit að skjáir verða ýmist uppseldir eða dýrari á næstunni, svo það er að hrökkva eða stökkva. Helst hefði ég auðvitað viljað sleppa með 15-30.000 ef það væri í boði fyrir skjá sem einfaldlega virkar sæmilega.
En, ég er glöð að ég fann þessa síðu, hér virðist vera topp samfélag : ) Ég er nebblega svo afskekkt og þó ég viti að maður sjái meir á 1 mín. í búðinni, þá er bara svo "#$%&/() langt þangað ; )
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Mán 10. Nóv 2008 18:53
af CendenZ
Ef þú kaupir þér Fujitsu skjáinn þá verðuru automatískt bönnuð/bannaður hérna á vaktinni. djók
Málið með Dell skjáinn að það þarf að tweaka hann og eyða tíma í að stilla hann, LCD skjáir virka ekki 100% out of the box.
en skoðaðu þennan skjá:
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... enQ_G2400WÉg og örugglega svona 5-6 aðrir hérna mæla með honum umfram hinum sem þú valdir.
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Mán 10. Nóv 2008 19:29
af KermitTheFrog
CendenZ skrifaði:Ef þú kaupir þér Fujitsu skjáinn þá verðuru automatískt bönnuð/bannaður hérna á vaktinni. djók

Tja, ca. 10k yfir price range hefði ég haldið miðað við það sem hann/hún gefur í skyn
Þessi væri kannski eitthvað meira í áttina
En svo fer allt eftir því hvað notandinn sjálfur vill
Annars á ég sjálfur
svona og er drullusáttur með hann og get mælt hiklaust með honum
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Mán 10. Nóv 2008 20:34
af Fumbler
Lífið er ljúft skrifaði:Sæl verið þið.
Ég þarf að fá mér tölvuskjá, kemst ekki í tölvubúð og þarf að láta senda mér í pósti. Er að skoða á netinu 22" skjá á verði sem ég ræð við, en það er talað um 800:1 skerpu á honum. Er það ekki allt í lagi, til að skoða ljósmyndir og netið? Ætla ekkert í grafíska hönnun eða þessháttar : ) Eða hvað? Vil ekki heldur fá skjá þar sem allt er í móðu *bros*.
Kveðja
Svona til þess að svara spurningunni "Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?"
Skerpa er munur á dekksta og ljósasta punktinum sem skjárinn getur framleitt. t.d ef dekksti punkturinn er með 0.2 í birtu þá getur hann náð 160 stigum í birtu á ljósum punkti.
Hér er linkur á wiki
http://en.wikipedia.org/wiki/Contrast_ratio
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Mán 10. Nóv 2008 20:41
af jonsig
Bara fáðu þér hyundai 22" nýju týpuna frá Computer.is . þetta er án vafa með flottari skjáum sem þú finnur fyrir sanngjarnan pening ,, (NÝJA TÝPAN)
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Þri 11. Nóv 2008 00:46
af Blackened
CendenZ skrifaði:Ef þú kaupir þér Fujitsu skjáinn þá verðuru automatískt bönnuð/bannaður hérna á vaktinni. djók
Málið með Dell skjáinn að það þarf að tweaka hann og eyða tíma í að stilla hann, LCD skjáir virka ekki 100% out of the box.
en skoðaðu þennan skjá:
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... enQ_G2400WÉg og örugglega svona 5-6 aðrir hérna mæla með honum umfram hinum sem þú valdir.
Ég á svona skjá.. þaðer Benq G2400W og ég gæti bara sennilega ekki verið sáttari með hann..
Þó að hann sé kannski pínu yfir verðþakinu þínu
Úff.. ég borgaði samt bara 42þúsund fyrir minn í vor ef ég man rétt.. allt að hækka :/
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Þri 11. Nóv 2008 07:06
af DaRKSTaR
dem hvað verðið er búið að hækka á þessu helvíti!!!!!!!
ég leit á prísinn 39900 á dell og ætlaði að segja honum að kaupa samsung synchmaster 2253bw hann væri ódýrari og betri.. en shit.. hann er kominn í 50 þús..
ég fékk minn á 34 þús í sumar..... holy moly.. ég sé alsekki eftir að hafa uppfært tölvuna í ágúst.. þetta allt komið út í bull verð núna

Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Þri 11. Nóv 2008 08:29
af Lífið er ljúft
Heyrðu mér líst rosa vel á þennan. En, er einhver ábyrgð hjá þeim?
Vá, ég mun sko koma mikið hingað áfram, frábær hópur : )
Ljúfa.
KermitTheFrog skrifaði:Þessi væri kannski eitthvað meira í áttina
En svo fer allt eftir því hvað notandinn sjálfur vill
Annars á ég sjálfur
svona og er drullusáttur með hann og get mælt hiklaust með honum
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Þri 11. Nóv 2008 08:35
af Lífið er ljúft
Svo var allt um ábyrgð á síðunni... ég keypti þennan skjá rétt í þessu - ef verð stenst og hann er enn til : )
TAKK : )
Ljúfa.
KermitTheFrog skrifaði:Tja, ca. 10k yfir price range hefði ég haldið miðað við það sem hann/hún gefur í skyn
Þessi væri kannski eitthvað meira í áttina
En svo fer allt eftir því hvað notandinn sjálfur vill
Annars á ég sjálfur
svona og er drullusáttur með hann og get mælt hiklaust með honum
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Þri 11. Nóv 2008 09:45
af ManiO
Breytti innleggjunum þínum þar sem eitthvað hefur klúðrast með quote-in. Og næst væri ágætt ef þú myndir nota breyta takkann í stað þess að gera 2 innlegg í röð.

Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Þri 11. Nóv 2008 19:00
af Lífið er ljúft
Takk Fumbler ofl ; ) Ég læri á kerfið hér býst ég við ; )
Ég hef ekkert heyrt frá Tölvuvirkni ennþá, er það venjulegt að þeir séu svona seinir að svara?
Sorrý yfir stressinu, ég hef bara ekki áhuga á að kaupa nýjan skjá á genginu 2-300 krónur fyrir evruna ; )
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Þri 11. Nóv 2008 19:39
af KermitTheFrog
Tja, ég keypti mér tölvu og fékk hana senda heim samdægurs
Lagði bara inn pöntun og hakaði við hraðsendingu (1500 kall) og fékk þetta sama dag og byrjaði að púsla saman

Hef bara fengið góða þjónustu hjá þeim
Sendiru þeim e-mail eða pantaðiru á síðunni?? Getur verið að þeir afgreiði pantanir frekar en tölvupósti.. Lenti í því að bíða heillengi eftir tölvupósti frá þeim, skoða það kannski ekki það oft
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Fim 27. Nóv 2008 19:02
af Lífið er ljúft
Jæja krakkar, ég keypti skjáinn sem CendenZ mælti með... og er mjög ánægð með hann
Frábært

Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Fim 27. Nóv 2008 19:40
af CendenZ
Lífið er ljúft skrifaði:Jæja krakkar, ég keypti skjáinn sem CendenZ mælti með... og er mjög ánægð með hann
Frábært

BenQ ?

Til hamingju
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Fim 27. Nóv 2008 22:51
af arnar7
ég rakst á
http://tl.is/vara/11305 og mér finnst hann líta ágætlega út...
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Fim 27. Nóv 2008 23:30
af CendenZ
Það er nú ágætt að þér finnst hann líta ágætlega út, en hann er WSGA samanber BenQ skjárinn er WXGA.
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Fim 27. Nóv 2008 23:33
af arnar7
jaja.. en ég veit nú ekkert mikið um skjái..
hugsa mest bara um look og verð í þeim málum enda hef ég ekki keipt mér skjá í 3 ár er bara með 17" Acer skjá

Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Fim 11. Des 2008 01:12
af sindrii
nenni ekki að fara að búa til nýjan þráð, en er að fara að fá mér þennan á mrg:
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... MT220#elkohvernig er mönnum að lítast á þennan?
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Fim 11. Des 2008 03:08
af dadik
Re: Hvað þýðir 800:1 skerpa á tölvuskjá?
Sent: Fim 11. Des 2008 10:48
af sindrii
skjákortið mitt styður ekki 1920x1200 og þessi er bara með 5 m/s í Pixel-response rate, þannig lýst eiginlega betur á hinn.