ICY Box IB-MP3010-B Review


Höfundur
Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

ICY Box IB-MP3010-B Review

Pósturaf Yank » Þri 07. Okt 2008 17:34

Sælir

Ný umfjöllun.
Að þessu sinni um margmiðlunarspilara sem er nokkuð forvitnilegur því hann bíður upp á þann möguleika að geta tekið upp myndefni ásamt fleiri sniðugum möguleikum.

viewtopic.php?f=40&t=19609

Kveðja Yank



Skjámynd

emmi
Of mikill frítími
Póstar: 1903
Skráði sig: Þri 24. Sep 2002 10:15
Reputation: 64
Staðsetning: Reykjanesbær
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: ICY Box IB-MP3010-B Review

Pósturaf emmi » Þri 07. Okt 2008 17:36

Fínasta review hjá þér. Ég er samt mjög hissa á því af hverju þessir framleiðendur eru einungis með 10/100Mb/s netkort. Þessar skrár í dag eru orðnar mjög stórar og maður mætti halda að það væri sniðugast að vera með 10/100/1000 kort í þessu.




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1821
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 88
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: ICY Box IB-MP3010-B Review

Pósturaf axyne » Þri 07. Okt 2008 18:20

Langar að spyrja hvaðan þú færð þær upplýsingar frá símanum að ekki sé hægt að taka upp sjónvarpsefni með upptökutæki frá Scart tenginu frá myndlykli símans.

Vissi ekki betur en að scart tengið frá lyklinum sé ekkert nema venjulegt scart tengi, skil ekki hvernig lykilinn á að geta vitað hvort sjónvarpstæki eða upptökugræja sé tengd við sig enda taka vinna bæði tækin úr sama vídeómerkinu.


Electronic and Computer Engineer

Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: ICY Box IB-MP3010-B Review

Pósturaf urban » Þri 07. Okt 2008 18:32

emmi skrifaði:Fínasta review hjá þér. Ég er samt mjög hissa á því af hverju þessir framleiðendur eru einungis með 10/100Mb/s netkort. Þessar skrár í dag eru orðnar mjög stórar og maður mætti halda að það væri sniðugast að vera með 10/100/1000 kort í þessu.


Tjahh, ef að þú ert með þetta sem NAS tengt í gegnum router þá er hann nú að öllum líkindum ekki nema 10/100


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


Höfundur
Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

Re: ICY Box IB-MP3010-B Review

Pósturaf Yank » Þri 07. Okt 2008 23:30

axyne skrifaði:Langar að spyrja hvaðan þú færð þær upplýsingar frá símanum að ekki sé hægt að taka upp sjónvarpsefni með upptökutæki frá Scart tenginu frá myndlykli símans.

Vissi ekki betur en að scart tengið frá lyklinum sé ekkert nema venjulegt scart tengi, skil ekki hvernig lykilinn á að geta vitað hvort sjónvarpstæki eða upptökugræja sé tengd við sig enda taka vinna bæði tækin úr sama vídeómerkinu.


Þetta var hlutur sem ég var bara ekki að skilja sjálfur. Var farinn að halda að myndlykillinn sem ég væri með frá Símanum væri gallaður.

Sendi inn skriflega fyrirspurn til símans og fékk það svar símleiðis einhverjum dögum seinna að allar stöðvarnar væru á einhvern hátt ruglaðar þannig það gengi ekki nema þá rás 1.

Sendi þennan link með fyrirspurninni
http://www.tech.is/spjall/viewtopic.php?f=11&t=512

Þannig þær upplýsingar eru frá þjónustuveri Símans komnar, ef það eru rangar upplýsingar þá endilega staðfestu að svo sé ef þú getur, en hef reynt ítrekað að fá mynd úr myndlykli Símanns, með Scart í composite tengi fyrir þessa græju en ekki getað. 3010 Virkar fínt með Digital Ísland.




axyne
Of mikill frítími
Póstar: 1821
Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
Reputation: 88
Staðsetning: DK
Staða: Ótengdur

Re: ICY Box IB-MP3010-B Review

Pósturaf axyne » Mið 08. Okt 2008 08:38

Yank skrifaði:
axyne skrifaði:Langar að spyrja hvaðan þú færð þær upplýsingar frá símanum að ekki sé hægt að taka upp sjónvarpsefni með upptökutæki frá Scart tenginu frá myndlykli símans.

Vissi ekki betur en að scart tengið frá lyklinum sé ekkert nema venjulegt scart tengi, skil ekki hvernig lykilinn á að geta vitað hvort sjónvarpstæki eða upptökugræja sé tengd við sig enda taka vinna bæði tækin úr sama vídeómerkinu.


Þetta var hlutur sem ég var bara ekki að skilja sjálfur. Var farinn að halda að myndlykillinn sem ég væri með frá Símanum væri gallaður.

Sendi inn skriflega fyrirspurn til símans og fékk það svar símleiðis einhverjum dögum seinna að allar stöðvarnar væru á einhvern hátt ruglaðar þannig það gengi ekki nema þá rás 1.

Sendi þennan link með fyrirspurninni
http://www.tech.is/spjall/viewtopic.php?f=11&t=512

Þannig þær upplýsingar eru frá þjónustuveri Símans komnar, ef það eru rangar upplýsingar þá endilega staðfestu að svo sé ef þú getur, en hef reynt ítrekað að fá mynd úr myndlykli Símanns, með Scart í composite tengi fyrir þessa græju en ekki getað. 3010 Virkar fínt með Digital Ísland.


Ég myndi halda þú hefðir verið með gallaðann lykill,

Ég er mikið að vinna með þessa lykla og hef oft og mörgum sinnum notað composite út á þeim (scart í RCA snúru) til að keyra mótara til að keyra sjónvarpsrás inná sjónvarpskerfið hjá viðskiptavin. bæði venjulegan lykil og HD lykil.
Og Meðan sjónvarpið sjálft er tengd við lykilin líka, skiptir ekki máli hvort það sé HDMI, component eða RGB SCART

Hef einnig tengd þessa lykla beint við sjónvarp með Composite, (tilvik þar sem önnur tæki fengu hærri forgang á HQ innganga)

Setti upp svona lykil ásamt upptökubúnaði um daginn og það svínvirkaði, en þar fór myndmerkið reyndar í gegnum sjónvarpið fyrst og RGB myndmerkið var notað í scartinu en ekki composite.


Electronic and Computer Engineer

Skjámynd

Halli25
Bara að hanga
Póstar: 1579
Skráði sig: Fim 13. Sep 2007 12:42
Reputation: 67
Staðsetning: Hveragerði
Staða: Ótengdur

Re: ICY Box IB-MP3010-B Review

Pósturaf Halli25 » Mið 08. Okt 2008 09:16

Varðandi að skjárinn virki ekki í upptöku með IB-MP3010-B þá er bróðir minn búinn að vera með hann í 2 vikur og notar scart í videotækið sitt og þaðan í flakkarann og það er ekkert mál að taka upp þannig. Skítamix kannski en virkar :)


Starfsmaður @ IOD


raekwon
Nörd
Póstar: 110
Skráði sig: Mán 07. Jan 2008 13:04
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: ICY Box IB-MP3010-B Review

Pósturaf raekwon » Mið 08. Okt 2008 10:34

Það er á flestum upptökugræjum, semsagt digital (cd, dvd, hd osfv)
að þá er sent merki frá dvd spilurum, myndlyklum ofl sem að upptökugræjurnar nema og þá er ekki hægt að taka upp og á þeim sem taka upp kemur merkið ónýtt, þetta er nottla hannað þar sem það má ekki framleiða búnað sem að getur tekið upp ólöglega og er svosem alveg skiljanlegt, videotæki td sendir þetta merki ekki frá sér svo að flest þeirra eyða því og svo er til búnaður sem setur á milli sem er bara lítið stykki sem fer á milli og eyðir merkinu en er nottla bannað og eingöngu til að prófa og sjá hvað mar er klár :)




Turtleblob
Fiktari
Póstar: 89
Skráði sig: Þri 19. Sep 2006 12:48
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: ICY Box IB-MP3010-B Review

Pósturaf Turtleblob » Mið 08. Okt 2008 11:32

raekwon skrifaði:þetta er nottla hannað þar sem það má ekki framleiða búnað sem að getur tekið upp ólöglega og er svosem alveg skiljanlegt,

Siðan hvenær er ólöglegt að taka upp á flakkara?
Þá ættu vhs tækin og dvd upptökutæki líka að vera ólögleg.
Verður þetta ekki fyrst ólöglegt þegar þú ert farinn að dreifa þessu?


"But a pig is smarter than twenty cats stapled to a three-legged horse" - OverCompensating.com
E8400 - 9600GT - 3GB RAM


benregn
Nörd
Póstar: 126
Skráði sig: Fim 28. Jún 2007 19:38
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: ICY Box IB-MP3010-B Review

Pósturaf benregn » Mið 08. Okt 2008 12:54

Við borgum stefgjöld af "tómum" miðlum. Svo síðast þegar ég vissi þá var löglegt að taka upp og afrit til einkanota.



Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3101
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 52
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: ICY Box IB-MP3010-B Review

Pósturaf beatmaster » Mið 08. Okt 2008 13:41

Hvað eru margir hérna gamlir?, það er búið að vera í mörg ár að þú getur t.d ekki tengt VHS tæki við annað VHS tæki til að taka upp það sem er að sýnast í hinu tækinu (eins og þegar að menn voru að Copy myndina sem að þeir höfðu tekið á næstu leigu) annaðhvort kom enginn mynd eða myndin kom en þegar að þú ætlaðir að horfa á það sem að þú hafðir tekið upp þá hafðirðu í rauninni bara tekið upp snjókomu.

Eldgömul tækni og kemur mér ekkert á óvart að sé notað enn í dag :)


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.