Síða 1 af 1

Tölvukaup, vantar ráðgjöf :S

Sent: Fim 02. Okt 2008 23:39
af Bollasupa
Satt að segja þá veit ég lítið sem ekkert um vélbúnað. Það sem ég er að leitast við er að hafa tölvuna með góða grafík, hátt fps, (mjög) góða kælingu og má alveg hafa smá hávaða (ekkert brjálaðann samt) Hún þarf líka að geta hýst mikið magn af gögnum (eitt terabæt til að byrja með, fæ mér svo annað og annað þegar hin fyllast). Ég er aðallega að leitast í frammistöðu í cod5, fallout 3, starcraft 2 og slíku... (ef það skiptir einhverju máli.)

Móðurborð - Intel - 775 - ASUS P5E DELUXE X48 DDR2 = 29.860k

Örgjörvi : Duo E8500 Retail / OEM = 20.700k

Skjákort - PCI-E - ATI - Sapphire HD4870 512MB GDDR5 PCI-E = 31.900k

Turn/aflgjafi/kæling: Helst nokkuð stórann með rými fyrir 2-4 harðadiska og aflgjafa sem er stabíll, endist og helvíti góð kæling en ekkert rosalega háværa. Ekki meira en 15k

Heyrnatól? Opin, góð gamer tól, með surround og mic. Ekki meira en 6k

Skjár? Verður að vera 22” 1680-1050, geta notast hd-dvd/blue-ray þegar það kemur og vera góður í leiki. Verð 25-35k

Vinnsluminni? Vil hafa það 4gíg allavegana, veit ekkert um hraðann eða gerð. Ég veit líka ekkert hvað móðurborðið styður í minni. Bara solid minni sem að er gott. Upp í 20 þús eða eitthvað. (jafnvel tvö stykki DDR2 1066MHz 4gb, er varið í það?)

1 terabæt diskur = 15990

Þetta endar í 174 þúsund (ef ég tel tops sem lokaverð) sem er alveg toppurinn á því sem ég tími að eyða í nýtt kerfi... Og satt að segja fynnst mér það heldur mikið. Er eitthvað þarna óþarfa dýrt eða eru þessar áætlunir mínar of bjartsýnar?

Ef þið nennið að skjóta á mig hugmyndum eða að leiðrétta einhverja vitleysu hjá mér væri það mjög vel þegið.

Re: Tölvukaup, vantar ráðgjöf :S

Sent: Fim 02. Okt 2008 23:58
af KermitTheFrog
móðurborðið þarf ekki að kosta svona mikið, þarft ekki meira en 800MHz minni (færð fín 4GB á ca 8000 kall), E8400 örri ætti að duga þér

Re: Tölvukaup, vantar ráðgjöf :S

Sent: Lau 04. Okt 2008 23:57
af Gúrú
Alls ekki kaupa 1066 mhz minni.

Eyddu 7000 kalli minna í vinnsluminni og kauptu heyrnartól með engum mic fyrir mismuninn og vertu bara með stakann microphone, mun praktískara og kostar minna fyrir hljómgæðin sem þú færð.

Passaðu þig að kaupa ekki skjá með TN panel ef þú planar að hafa fólk hringinn í kringum skjáinn, því það mun hafa erfiðleika í að sjá á skjáinn allan hálfhringinn

Mæli með því að kaupa mér seagate disk því að ÉG hef betri reynslu að þeim.
Ekki gott að spara 2000 kall til að diskurinn crashi kannski 2mán-1 ári fyrr en hinn hefði.
Annars er allt í þeim málum bara heppni/óheppni.

Re: Tölvukaup, vantar ráðgjöf :S

Sent: Sun 05. Okt 2008 00:35
af KermitTheFrog
eða eyddu 12.000 kalli minna í RAM

Re: Tölvukaup, vantar ráðgjöf :S

Sent: Sun 05. Okt 2008 02:13
af bulldog
1 terabæta diskurinn er kominn í 19.750 núna :)

Re: Tölvukaup, vantar ráðgjöf :S

Sent: Sun 05. Okt 2008 14:17
af Gúrú
bulldog skrifaði:1 terabæta diskurinn er kominn í 19.750 núna :)


http://www.tolvulistinn.is/vara/7146 17.990?