WinTV Sjónvarpskort, Hjálp!


Höfundur
gunnicruiser
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Þri 29. Jan 2008 23:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

WinTV Sjónvarpskort, Hjálp!

Pósturaf gunnicruiser » Fös 12. Sep 2008 14:02

Sælir kæru Vaktarar.
Ég var að kaupa mér lítillega notað sjónvarpskort hér á vaktinni um daginn. Þegar ég kom heim þá reyndi ég að tengja þetta og láta það virka. Þannig það væri gott að fá hjálp frá einhverjum sem þekkir svona dót eða á svona. Mín vandræði eru:
1. Hvernig á ég að tengja þetta? Er nóg að bara tengja litla USB stykkið í tölvuna, loftnetið í það og kveikja á?
2. Þegar ég er búinn að tengja þetta þá ýti ég á WinTV merkið með er á desktopinu mínu. Þá kemur upp gluggi sem segir: "Would you like to scan for channels now?" Ég ýti á yes og þá kemur upp mynd sem ég á að velja mér land sem ég er í, EN það er EKKI Ísland í boði. Svo á ég að velja mér hvort ég noti cable eða loftnet (er með bæði, þannig skiptir mig ekki máli). Svo á ég að velja mér "format" sem ég veit ekki hvað er og valið er á milli:
NTSC_443
NTSC_Japan
NTSC_M
PAL_BGHIDK
PAL_DK
PAL_M
PAL_N
PAL_NCOMBO
SECAM


Svo á maður bara að ýta á scan og þá eiga stöðvarnar að koma...

Það væri snilld ef einhver gæti hjálpað mér í þessu.

Kær kveðja
Gunnar Smári :wink:



Skjámynd

AngryMachine
has spoken...
Póstar: 174
Skráði sig: Sun 15. Jan 2006 23:53
Reputation: 0
Staðsetning: Rvk
Staða: Ótengdur

Re: WinTV Sjónvarpskort, Hjálp!

Pósturaf AngryMachine » Fös 12. Sep 2008 15:36

Sæll gunni :)

Mig minnir að í 'land' þá geturðu valid Danmörk, þeir nota sömu staðla og við. Varðandi hvort þú veljir cable eða loftnet þá hlýtur það að fara eftir því hvort þessara tveggja valkosta þú ert með kortið tengt í. 'Format' er PAL, BGHIDK ef ég man rétt, en ef ekki það þá samt pottþétt einhver af þessum pal stöðlum.


____________________
Starfsmaður @ hvergi


rkm
Fiktari
Póstar: 62
Skráði sig: Sun 18. Des 2005 19:03
Reputation: 0
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: WinTV Sjónvarpskort, Hjálp!

Pósturaf rkm » Fös 12. Sep 2008 16:58

pal_ dk og málið er dautt :D




Höfundur
gunnicruiser
Fiktari
Póstar: 66
Skráði sig: Þri 29. Jan 2008 23:19
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: WinTV Sjónvarpskort, Hjálp!

Pósturaf gunnicruiser » Fös 12. Sep 2008 21:08

flott, þetta er komið, takk fyrir angry machine en ég keypti einmitt kortið af honum... :wink: