Síða 1 af 1

Hvort er betra?

Sent: Þri 28. Okt 2003 13:28
af hallihg
Ég ákvað að senda inn þessa fyrirspurn hingað til að fá sérfræði ráðgjöf þeirra tölvuáhugamanna sem þennan forum vef stunda. Ég ætla líklegast að fjárfesta í nýju skjákorti næstu mánaðarmót, þar sem núverandi skjákort mitt er einfaldlega of lélegt fyrir þá leiki sem ég spila (GF2 Mx rusl). Þar sem ég er afar fátækur námsmaður, hef ég ekki efni á dýrum búnaði. Ég hef helst verið að pæla í GF-FX5200 128MB, sem fæst ódýrast á 8.490 kr., eða GF4Ti4200-8X 64MB á 14k, sem er samt frekar hátt verð miðað við fjármuni mína en ætti að sleppa. Ég var að pæla, hvort skjákortið ég ætti að kaupa, og endilega segið mér af hverju.

Sent: Þri 28. Okt 2003 13:38
af halanegri
Ti4200 er miklu betra en FX5200, sem er sorp.

Re: Hvort er betra?

Sent: Þri 28. Okt 2003 13:39
af legi
gf4 ti 4200 ekki spurning.

Þó það styðji ekki dx9 eins og fx 5200 þá sé ég ekki að það sé hægt að spila dx9 leiki á fx 5200 það er svo ægilega hægvirkt, eða allavega ekki með ásættanlegu performance.

Ég mundi nú prufa að bíða aðeins og sjá hvort að 9600 pro kortin fari ekki að lækka eithvað í verði, bestu budget kaupin verða sennilega í því korti.

Sent: Þri 28. Okt 2003 13:41
af halanegri
Já, mæli frekar með að þú nælir þér í eitthvað Radeon kort.

Sent: Þri 28. Okt 2003 20:48
af hallihg
Ok, en haldiði að það hafi ekkert að segja að GF 4200 Ti kortið er 64 mb, en GF FX5200 kortið er 128 mb? :|

Sent: Þri 28. Okt 2003 21:55
af elv
GPU á Ti kortinu skiptir meira máli.

Sent: Þri 28. Okt 2003 21:57
af Arnar
Þessi mb skipta enga fyrir ofan 128 og mjög littlu fyrir ofan 64 held ég.

Sent: Þri 28. Okt 2003 22:31
af Zaphod
FX eru algjört klúður ........

Keyptu bara helst allt annnað.

Sent: Þri 28. Okt 2003 23:56
af gnarr
leitaðu á partalistanum. þar er maður sem er með 20 GF4200 kort til sölu fyrir 10.000kr.

Sent: Mið 29. Okt 2003 10:18
af saevar
Zaphod skrifaði:FX eru algjört klúður ........

Keyptu bara helst allt annnað.


Þú verður bara að treysta Zaphod hann er nú einusinni forseti alheimsins. :8)

Sent: Mið 29. Okt 2003 10:22
af halanegri
Þetta er alveg satt.....

Sent: Mið 29. Okt 2003 14:23
af ICM
:hrollur: þoli ekki svona cheap hluti með flott nöfn. og fólk heldur að það hafi verið að gera svo góð kaup.