Síða 1 af 1
HD 4850
Sent: Fim 21. Ágú 2008 01:23
af KermitTheFrog
ein pæling:
ég er að fara að fá mér nýja tölvu og er búinn að setja saman ágætis pakka, sem meðal annars inniheldur HD 4850 skjákortið góða.. maður hefur heyrt fína hluti af því
ég er með 22" skjá sem ég keyri á 1680x1050 upplausn
réði kortið ekki vel við nýjustu leikina í góðum gæðum án neins laggs??
Re: HD 4850
Sent: Fim 21. Ágú 2008 02:25
af DaRKSTaR
eru toppkort.
ég get samt ekki svarið að þú keyrir crysis með allt í botni í þessari upplausn, ég meika það á 4870 en ég veit líka að það er mikill munur á performance þarna á milli.
afhverju ekki að skafa saman í 9 þús kall í viðbót og taka 4870?.. verður alveg uber happy með það, því get ég lofað þér.
Re: HD 4850
Sent: Sun 24. Ágú 2008 00:52
af KermitTheFrog
já, það er eiginlega pælingin sko.. á ekki mikinn pening en langar svakalega í það sko
vinur minn er með 4850 og hann laggaði í 1280x1024 með allt í high, en miklu minna með allt í medium.. svo laggar hann ekkert í low
maður er bara að pæla
kannski er það langskynsamlegast.. endist 4870 ekki lengur??
Re: HD 4850
Sent: Sun 24. Ágú 2008 01:07
af DaRKSTaR
4870 endist þér mun lengur, ég veit ekki með lægri upplausnir.
ég keyri í 1680x1050 og er bara sáttur.. hún tekur crysis léttilega, ég spilaði leikinn þángað til að ég var kominn inn í fjallið í þetta geymveru kjaftæði þá fékk ég nóg af honum.
var ekki einn að selja notað svona kort hérna,, getur reint að díla hann til?.
alveg hikalust reina á það eða bíða smá og safna aðeins meiri pening, ég er handvissum að þú munt brosa allann hringinn þegar
þú ert kominn með 4870.. hehe
Re: HD 4850
Sent: Sun 24. Ágú 2008 01:14
af KermitTheFrog
hehe, ég kláraði einmitt þetta geimveradrasl inní fjallinu heima hjá vini mínum
en þá pæli ég aðeins betur í þessu með kortin
Re: HD 4850
Sent: Sun 24. Ágú 2008 03:07
af GGG
Ég er með HD4850 í tövu sem ég var að versla og í 1680x1050 þá laggar Crysis með allt í botni smá, böggar mig ekkert, voða lítið.
En ef þú hefur efni á HD4870, go for it

Re: HD 4850
Sent: Sun 24. Ágú 2008 12:10
af KermitTheFrog
já, ég er meira fyrir að þetta runni allt smoothly hjá mér sko
Re: HD 4850
Sent: Mán 25. Ágú 2008 17:06
af kallikukur
fáðu þér hd4870 .. það er frábært
og ef þú keyptir tilboðið í kísildal þá taka þeir hd4850 upp í á fullu verði !
Re: HD 4850
Sent: Mán 25. Ágú 2008 18:12
af KermitTheFrog
held ég fái mér 4850 þegar ég kaupi tölvuna um mánaðarmótin og sel það svo og kaupi 4870 um næstu mánaðarmót þegar ég fæ meira útborgað ef ég hef ekki efni á 4870 um mánaðarmótin
Re: HD 4850
Sent: Mán 25. Ágú 2008 18:22
af kallikukur
hvar kaupiru hana?
og má ég sjá?

Re: HD 4850
Sent: Mán 25. Ágú 2008 18:36
af KermitTheFrog
Re: HD 4850
Sent: Mán 25. Ágú 2008 23:14
af KermitTheFrog
en hvernig yrði það, réði maður nokkuð við eitthvað af viti með 9600GT til dæmis eða eitthvað annað svona í ódýrari kantinum??
eða jafnvel hd 3850??
Re: HD 4850
Sent: Mán 25. Ágú 2008 23:17
af kallikukur
nei.
ég var með 2 hd3850 og þau virkuðu ekki fyrir fimm aura við hliðina á hd4870
