Ég er að yfirklukka CPU og GPU í BIOS og það sem kemur fyrir er það að tölvan vill ekki boota eftir það. Þannig að ég þarf að færa jumper til að koma þessu í lag. Hvað á ég að gera?
Re: Vesen með yfirklukkun.
Sent: Mið 06. Ágú 2008 20:18
af Zorglub
Finna upplýsingar um borðið eða leita með vasaljósi til að finna þessa tvo (þrjá) pinna sem þarf að leiða á milli til að endursetja bios stillingarnar, getur líka virkað að taka batteríið úr og bíða smá stund. ps. stundum eru þetta tveir pinnar sem þú leiðir á milli, stundum þrír þar sem þú færir jumper fram og til baka og það nýasta er einfaldlega reset takki á borðinu
Re: Vesen með yfirklukkun.
Sent: Mið 06. Ágú 2008 20:26
af Predator
Held ég geti sagt með fullri vissu að það sé ekki hægt að overclocka skjákort í biosnum. Ef þú ert að hækka tíðnina á PCI-E brautinni skaltu breyta því aftur í 100MHz sem er default.