Síða 1 af 1
Sér ekki hörðu diskana
Sent: Lau 12. Júl 2008 20:37
af Predator
Ég er með 4 harða diska tengda við tölvuna hjá mér 2x IDE og 2x Sata. Ég var að formata í dag úr vista yfir í xp og xp sér ekki Sata diskana mína. Eitthverjar uppástungur um það hvað ég get gert til að laga það?
Re: Sér ekki hörðu diskana
Sent: Lau 12. Júl 2008 21:31
af Gúrú
Í My Computer>Hardware>Device Manager, stendur semsagt ekkert í +Disk drives?
Ertu viss um að vera ekki bara í +IDE/ATA/ATAPI boxinu?
Og í hvaða disk ertu með stýrikerfið uppsett? IDE eða Sata?
Re: Sér ekki hörðu diskana
Sent: Fim 24. Júl 2008 13:45
af dorg
Vantar ekki bara driver fyrir sata diskcontrollerinn í XP
Re: Sér ekki hörðu diskana
Sent: Fim 24. Júl 2008 14:22
af IL2
XP ætti að sjá Sata diskana hjá þér á erfiðleika. Prófaðu að taka þá úr og starta tölvunni upp aftur, þá ætturðu að sjá báða Ide diskana án erfiðleika. Tengdu svo bara einn Sata disk í einu.
p.s Hvað með móðurborðið. Hefurðu athugað drivera á það. Ætti svo sem ekki að vera vandamál.
p.p.s ef þú ert að reyna setja Xp upp á Sata diskunum gengur það ekki nema að setja Sata Xp drivera á diskettum upp fyrst.