Síða 1 af 1

*Update* Framleiðslugalli í öllum 65n og 55nm kjörnum NVIDIA

Sent: Fös 11. Júl 2008 20:58
af TechHead
Forsagan:

Í apríl 2007 var töluvert skrifað um vandræði Nvidia með að fá straumstýringuna á G84 [Geforce 8400] og G86 [Geforce 8600] "A01 Revision" kjörnunum til að keyra almennilega,
Nvidia neitaði alfarið að um vandamál væri að ræða :roll:

Þessi straumstýrings bilun hafði meðal annars þau áhrif á Mobile kjarnana að þegar kjarninn fór úr 3D vinnslu yfir í 2D vinnslu þá lækkaði ekki straumstýringin voltin inn á kubbinn.
Með öðrum orðum þá keyrðu kubbarnir alltaf á Full Steam = mikil hitamyndun og álag á kælibúnað+PCB.

Bilun þessi varð til þess að flestir fartölvumóðurborðs framleiðendur afpöntuðu A01 Rev kjarnana og biðu eftir A02 Rev kjörnum sem áttu að laga vandamálið (ekkert vandamál já...)

Þegar A02 kjarnarnir komu þá höfðu Nvidia leyst niðurklukkunarstraumvandamálið en á móti kom að í A02 rev kjörnunum var búið að hækka voltin um 0.075v (úr 1.3 í 1.375) Eeeeeen Nvidia sagði "Engar áhyggjur, kjarninn þolir þetta..." og allir voru ánægðir nema fartölvuframleiðendunir sem voru komnir með kubba í hendurnar sem hitnuðu mun meira en upprunalega Spec og kælibúnaður gerði ráð fyrir:?

Útkoman

Nú er óvenju mikið farið að bera á bilunum í fartölvum sem innihalda [Breytt] 65nm eða 55nm kjarnana. Sérfræðingar hafa komist að því að efnið sem er notað til að binda "Die´ið (kjarnann)" við
"pakkann" er of veikt til að þola miklar hita sveiflur í langann tíma í þeim hita sem kjarnanir gefa frá sér. (Mjög svipað því sem M$ lentu í með skjákortin í Xbox360)

Nvidia neita því ennþá að um vandamál sé að ræða í kjörnunum og benda á alla aðra eins og t.d. hvernig notendur eru að nota tölvurnar sínar og fartölvuframleiðendurna... gott að afla sér vina svona.. :lol:
(Fjöldinn allur af þráðum er sprottinn upp um allt internet með vandamálum af þessu tagi. Þetta hrjáir alla framleiðendurna, HP, Dell, Acer, Apple etc...)
*Update - Nvidia tilkynnti á NVISION 08 ráðstefnunni breytingu á efnisvali við framleiðslu substrates á kjarnana sína, úr high-lead yfir í eutectic =D>

HP voru fyrstir til að brjóta ísinn og hafa gefið út fjöldann allan af BIOS "lagfæringum". Það sem þessar lagfæringar gera er einfaldlega að setja viftustýringu tölvnanna í 100% . ALLTAF í 100%.
Jibbí meiri hávaði og mikið minni batterísending :roll: (vörusvik miðað við upprunalega specca á vélum)
*Update - Komið hefur í ljós að Dell og HP ásamt fleirum vissu af þessu vandamáli fyrir allt að ári síðan en kusu að gera ekkert í því.
Til gamans má geta að bilunin virðist oftast koma fram eftir um það bil árs notkun en þá er að sjálfsögðu ábyrgð fallin úr gildi á flestum vélum a.m.k þeim sem verslaðar eru í USA (kannski þessvegna sem Nvidia telur þetta ekki vandamál?)

Bottom Line

Ef þú átt fartölvu sem er enn í ábyrgð með Nvidia[Breytt] 65nm eða 55nm skjákorti þá er það ekki spurning um hvort heldur hvenar skjákortið mun gefa sig.
Þannig að reynið á skjákortin ykkar með því að lúppa eitthvað þungt 3d stress test og alt+tabið reglulega útúr því til að láta skjákortið kæla sig niður á milli ;)
Gerið þetta cycle nógu oft og skjákortið mun gefa sig á endanum. Þá getið þið farið með tölvuna í ábyrgðarviðgerð og fáið hana vonandi til baka með
einum af nýjustu kjörnunum sem eru framleiddir með eutectic substrate sem inniheldur ekki þetta vandamál.

Þetta vandamál nær líka yfir Desktop skjákort, en þar sem hita cycle á þeim er ekki nálægt því jafn mikið og í fartölvum mun líða töluvert lengri tími þar til bilanir í þeim koma í ljós.
Ath einnig að hvorki Nvidia né framleiðendur hafa viðurkennt að um "galla" sé að ræða og skipta því eingöngu "biluðum" búnaði út.

Happy chip cracking :8)

Re: Alvarlegur framleiðslugalli í G84 og G86 kjörnum NVIDIA

Sent: Fös 11. Júl 2008 21:23
af Gúrú
Er þetta löglegt segi ég nú bara :shock:

Re: Alvarlegur framleiðslugalli í G84 og G86 kjörnum NVIDIA

Sent: Fös 11. Júl 2008 21:55
af hallihg
Að stress prófa skjákortið er fullkomnlega löglegt, sömuleiðis að hafa það undir miklu álagi.

Þótt einhverjum gæti fundist þessar ráðleggingar á "gráu" þá finnst mér þetta mjög réttlætanlegt.

Re: Alvarlegur framleiðslugalli í G84 og G86 kjörnum NVIDIA

Sent: Fös 11. Júl 2008 22:15
af Viktor
hallihg skrifaði:Að stress prófa skjákortið er fullkomnlega löglegt, sömuleiðis að hafa það undir miklu álagi.

Þótt einhverjum gæti fundist þessar ráðleggingar á "gráu" þá finnst mér þetta mjög réttlætanlegt.


Efast stórlega um að hann hafi verið að spyrja hvort stress test væru lögleg. Frekar þetta sem nVidia eru að gera.

Re: Alvarlegur framleiðslugalli í G84 og G86 kjörnum NVIDIA

Sent: Fös 11. Júl 2008 22:28
af Gúrú
Var nú bara að meina að viðurkenna ekki að þetta sé galli,
að kalla þetta ekki aftur til baka á A01 og að gera það svo ekki á A02, heldur að halda áfram í afneitun.
Og lolz halli

Re: Alvarlegur framleiðslugalli í G84 og G86 kjörnum NVIDIA

Sent: Fös 11. Júl 2008 23:15
af zedro
Flottur þráður og skemmtileg lesning =D>

Re: *Update* Framleiðslugalli í öllum 65n og 55nm kjörnum NVIDIA

Sent: Þri 02. Sep 2008 10:26
af TechHead
Ný grein sem fjallar ýtarlega um þetta vandamál og mjög skemmtileg lesning fyrir þá tæknilega sinnuðu :wink:

Afhverju eru Nvidia kjarnanir gallaðir.

Re: *Update* Framleiðslugalli í öllum 65n og 55nm kjörnum NVIDIA

Sent: Mán 29. Sep 2008 09:23
af barabinni
Hugsa að þetta hafi eitthvað með það að gera þegar skjákortið í minni fartvölu gaf sig... Þó að ég sé ekki viss.

Re: *Update* Framleiðslugalli í öllum 65n og 55nm kjörnum NVIDIA

Sent: Mán 29. Sep 2008 10:52
af dellukall
Daginn er þetta bara vandamál í fartölvum #-o

Re: *Update* Framleiðslugalli í öllum 65n og 55nm kjörnum NVIDIA

Sent: Mið 01. Okt 2008 18:28
af Gúrú
dellukall skrifaði:Daginn er þetta bara vandamál í fartölvum #-o


Nei.

Re: *Update* Framleiðslugalli í öllum 65n og 55nm kjörnum NVIDIA

Sent: Fim 09. Okt 2008 16:35
af jonsig
Nvidia hefur tapað 120miljón$ vegna innkallaðara tölva, samkvæmt the inquirer og gæti hugsanlega steypt þeim á hausinn. þessvegna hafa Nvidia góða ástæðu til að neita þessu vandamáli.

Ég persónulega treysti Nvidia ekki baun , nýjasta ruglið í þeim að skjákortin sín eigi heiðurinn af 44% af öllu sem gerst hefur í Folding@home.. sem er rugl þar sem ATi hefur ownað þá frá upphafi í þeirri vinnslu. Svo var rúmor á sínum tíma að þeir hafi komið 3dFx á hausinn á sínum tíma til að ná undir sig staffinu þeirra, með vísvitandi gröfum um vinnslu nýju Voodoo kubbanna , sem á þeim tíma ownuðu RivaTNT "núb" dóið þeirra

Re: *Update* Framleiðslugalli í öllum 65n og 55nm kjörnum NVIDIA

Sent: Fim 09. Okt 2008 18:32
af dadik
Nvidia er í töluverðu veseni út af þessum galla.

En 3dfx sáu alveg um það sjálfir að koma sér á hausinn á sínum tíma. Menn misstu sig bara í eitthvað endalaust rugl.

Re: *Update* Framleiðslugalli í öllum 65n og 55nm kjörnum NVIDIA

Sent: Mán 13. Okt 2008 09:49
af TechHead
Nú hafa Apple loks bæst í hópinn og viðurkennt gallann í Mackbook Pro vélum framleiddum milli Maí 2007 og September 2008

Sjá hér: http://support.apple.com/kb/TS2377

Einnig hafa HP sett út Warranty Service Announcement á Slimline Desktop vélar sem innihalda G84/G86 Desktop GPU kjarna.
Sjá hér: http://h10025.www1.hp.com/ewfrf/wc/document?docname=c01514044&cc=us&%20dlc=en&lc=en&jumpid=reg_R1002_USEN


Svo virðist vera að Nvidia hafi logið blákalt þegar þeir sögðu þetta vandamál aðeins snerta "örfáa" mobile GPU kjarna :roll:

Re: *Update* Framleiðslugalli í öllum 65n og 55nm kjörnum NVIDIA

Sent: Lau 25. Okt 2008 02:10
af jonsig
já samkvæmt inquirer þá þola þessir kubbar ekki hitaþennslu , rafrásirnar í kubbunum þeirra ÖLLUM af þessum 2 línum (Bumps) eru að skemmast útaf svo mismunandi hitaþennslu í kubbnum sjálfum.
þetta á við líka Desktop, heimilistölvurnar ykkar ! samkvæmt þessari grein eru 40% örrana að gefa sig innan árs "shot life expectancy" og það er ekki spurning að hinir gefa sig skömmu seinna. Ef ég væri með Nvidia og annað þessara kubba setta þá væri ég að láta það í þunga vinnslu og kæla það niður í nokkrar mínutur . Það er alveg ástæðulaust að vorkenna Nvidia þegar þeir eru að ljúa í fólk að það sé ekkert vesen á ferðinni , þeir eru að reyna láta tölvurnar duga út ábyrgðartímann. Eins og ég segi það koma góðir hlutir frá Nvidia en algert crap líka , þessvegna er maður pottþéttur með ATI eða allavegana mun oftar uppá conflicta og annað ,ég veit svosem voða lítið um endingu þar sem ég er búinn að henda þessu innan árs.


Vandamálið hjá Nvidia núna er að þeir eru að notast við "high lead bumps/eutectic MIX"(hitaþennsluvandamál milli þessara efna valda þessum skemmdum snemma) rásir á Gpu en ætla að skipta yfir í "eutectic bumps" eins og ATI eru með EN vandamálið þeirra er að GPUarnir þeirra eru með of háa Amper tölu yfir rásirnar, og að skipta yfir í eutectic bumps er no-go því þannig rásir eru ekki að þola þessa tölu ampera.

Og það allra nýjasta Nvida eru að fara í mál við geimverur útaf gölluðum efnum til vinnslu á þessum kjörnum án jóks óþekktir krimmar að leika nvid grátt, ÞETTA elska ég við USA alltaf öðrum að kenna og ef engin sökudólgur finnst , þá er alltaf hægt að kenna geimverunum um :D