Síða 1 af 1

Hljóðlátir diskar

Sent: Lau 18. Okt 2003 00:11
af enypha
Nú hef ég eytt meira púðri en góðu hófu gegnir í að minnka hávaðasegginn sem er tölvan mín. Peningar, tími og alveg gríðarlegt magn af pirringi hefur farið í þetta. Góðu fréttirnar eru þó þær að ég get núorðið sagt - þetta er allt að koma.

Ætla nú ekki að lista allt sem ég hef gert núna, nema það síðasta - sem ég bætti við í dag. Hengdi harða diskinn minn (Seagate Barracuda) upp í teygjum. Flestir kannski heyrt um þetta en eflaust færri prófað. Það er alveg rosalegur munur, bæði í idle og skrallið þegar hausinn er á fleygiferð, það er varla að ég heyri hvort hann sé að vinna eður ei. Þetta er tekið af http://www.silentpcreview.com (Storage og svo Suspensions).

Eitthvað er nú talað um að diskurinn hitni meira svona þar sem enginn hitaleiðni er lengur gegnum kassann. Ég leyfi mér að lifa í þeirri trú að það sé nú allt innan hættumarka.

Kveðjur.