Síða 1 af 1

Góð midrange vél?

Sent: Fös 30. Maí 2008 12:52
af Butcer
9600 GT 512MB=16k
Duo E8400
með 4 gminni

Er núna góður tími til að uppfæra eða er eitthvað nýtt að fara koma út sem gera þetta úrelt, ég vil helst geta uppfært vélina án þess að þurfa að skipta um allt(er að tala um 2-3 ár)

Verðru ddr2 úrelt bráðum eða duo, væri málið að kaupa móðurborð með due og quad support? Er quad að verða úrelt?

Re: Góð midrange vél?

Sent: Fös 30. Maí 2008 13:42
af mind
Fínir íhlutir , færð ekki mikið betra fyrir peninginn.

Dual core = tölvuleikir
Quad core = Ef forritin styðja hann er hann hraðvirkari(það kemur einhver og segir hann sé betri en dual core með enga útskýringu afhverju líklega)

Núna í sumar kemur nýtt frá ATI og Nvidia.

DDR3 er komið en rosalega dýrt fyrir tilturlega litla hraðaaukningu. Áætlað mainstream á næsta ári.

Að öllu jöfnu endurnýjast allt tæknilega séð á 2 árum í tölvunni þinni.

Flest öll móðurborð eru með dual & quad core stuðning í dag.

Vona þetta svari öllu :)

Re: Góð midrange vél?

Sent: Fös 30. Maí 2008 19:24
af Gúrú
Quad er ekki að verða úrelt, quad er ekki byrjað.

Í dag eru ekki mörg forrit sem eru að nýta alla fjóra kjarnana.

DDR3 er eitthvað sem ég sé ekki fram á að þú þurfir í komandi leiki, 800mhz ddr2 er nóg.

Veit fyrir staðreynd að 9600 GT vinnur 8800 GT'ið mitt í cs;s svo ég held að þú hafir valið vel þar.