Síða 1 af 1

Hardware RAID + Software RAID.. theory

Sent: Fim 16. Okt 2003 23:17
af Fox
Spurning sem hefur verið á vörum mínum í allnokkurn tíma.

Ég tek tvo RAID controllers.

Ég byggi RAID 0 array (Stripe) með 2 hörðumdiskum á hvorum.

raid1 HDD1 og HDD2 búa til array A
raid2 HDD1 og HDD2 búa til array B

Næst fer ég í windows, og windows sér bara Harðandisk A og B
Næst uppfæri ég A og B í Dynamic Disk, til að geta notað software raid.
Skulum kalla það Partition 1.

Ég software raida A og B saman í RAID 0.
- Ef það tekst, hvað í andsk. gerist þegar ég set eithvað á diskinn?

Undir venjulegum kringumstæðum færi 1 byte niður í tvo 4bit hópa á sitthvorn diskin.

Dæmi með A:
Ég set 1 byte á hann, þá færi 4bit á HDD1 og önnur 4bit á HDD2.

Ef 4 samanstæði af 4 diskum myndi 2bit fara á hvorn disk.

Núna þegar ég set 1byte á Partition 1, þá ætti 4 bit að fara á A og önnur 4bit á B. Svo ætti hardwareið sem sér um A og B að splitta því niður á 2 bit á hvorn disk.
Svo HDD1 og HDD2 á A, myndi hafa 2bit hvor, og HDD1 og HDD2 á B myndi hafa 2bit hvor. Samtals 8bit eða 1byte.

Segjum að þetta gangi í theory, hvað gerist þá ef ég er með 4 hardware raid controllera, og 2 diska á hvorum.

Hvernig í !"#$ myndu 8bit-um verða skipt niður á 16 diska?

Sent: Fim 16. Okt 2003 23:24
af Daz
einn biti á 8 diska.
Ég held að þú ættir ekki að vera að hafa áhyggjur af svona, reyndu frekar að ákveða þig hvort RAID0 eða RAIDmilljón séu betra eða komast að því hvað þarf mikið cache til að nota 500 gb ata100 disk :)

Sent: Fim 16. Okt 2003 23:25
af Fox
Daz skrifaði:einn biti á 8 diska.
Ég held að þú ættir ekki að vera að hafa áhyggjur af svona, reyndu frekar að ákveða þig hvort RAID0 eða RAIDmilljón séu betra eða komast að því hvað þarf mikið cache til að nota 500 gb ata100 disk :)


Langar bara til þess að vita svarið við spurningunni.

Sent: Fim 16. Okt 2003 23:30
af Daz
Eins og ég sagði. 1 biti á 8 diska líklega. Og svo kemur mjög sjaldan fyrir að einhver skrifi 1 byte í einu. Ef svo er ætti RAID controllerinn að vera forritaður til að geta höndlað málið.

Sent: Fim 16. Okt 2003 23:35
af Fox
Daz skrifaði:Eins og ég sagði. 1 biti á 8 diska líklega. Og svo kemur mjög sjaldan fyrir að einhver skrifi 1 byte í einu. Ef svo er ætti RAID controllerinn að vera forritaður til að geta höndlað málið.


Það kemur á óvart ef hann setur bara 1 bit á 8 diska og sleppir hinum úr.

Og ef þú þarft að geyma char í file, fyrir einhverjar ástæður (memory dump úr forriti??), þá tekur hann 1 byte.

Sent: Fim 16. Okt 2003 23:39
af Daz
1 char = 8 bitar, til hamingju það er rétt (í ASCII).
Memory dump úr forriti er aldrei bara einn char.
Og hvað viltu þá gera við þessa 8 bita? Splitta þeim í tvennt og skrifa hálfan bita á hvern disk?

Sent: Fös 17. Okt 2003 00:31
af Fletch
Skrifar aldrei eitt byte í einu...

Þú velur í flestum raid controllerum hvað þú vilt hafa hvert block stórt, t.d. 4KB, eða 16KB, 32KB, 64KB....etc

stærri block henda betur ef þú er mikið mikið af stórum file'um en hentar illa uppá ef þú ert með marga litla file'a, þá verður slatti wasted space..

Fletch

Sent: Fös 17. Okt 2003 02:01
af Fox
Fletch skrifaði:Skrifar aldrei eitt byte í einu...

Þú velur í flestum raid controllerum hvað þú vilt hafa hvert block stórt, t.d. 4KB, eða 16KB, 32KB, 64KB....etc

stærri block henda betur ef þú er mikið mikið af stórum file'um en hentar illa uppá ef þú ert með marga litla file'a, þá verður slatti wasted space..

Fletch


Ahh clutster :P

Sent: Fös 17. Okt 2003 07:36
af gnarr
afhverju færðu þér ekki frekar einn góðann raid controller heldur en 2 ódýrari. þá getur raidað 4diska saman mðe hardware. það virkar mun betur.

Sent: Fös 17. Okt 2003 12:50
af Fox
gnarr skrifaði:afhverju færðu þér ekki frekar einn góðann raid controller heldur en 2 ódýrari. þá getur raidað 4diska saman mðe hardware. það virkar mun betur.


Ég er að byggja theory, ekki að ég sé að fara að gera þetta.

Sent: Fös 17. Okt 2003 13:18
af Daz
Hvernig "theory" ertu að fara að byggja?

Sent: Fös 17. Okt 2003 16:55
af Voffinn
Hann Theory verður brjálaður þegar hann sér þetta :lol:

Sent: Fös 17. Okt 2003 17:53
af MezzUp
lol, góður þessi :P