Pósturaf mind » Mið 30. Apr 2008 09:21
Ef við værum að hugsa þetta út frá - sem mest fyrir peningana í öflugu dóti.
Dual Core E8400 örgjörvi - 23.000 (færð lekki nægilega mikið auka afköst fyrir dýrari örgjörva, tölvuleikir nýta ekki eða illa quad core)
2gb minni 4.500 (mjög fáir tölvuleikir geta nýtt meira minni , munurinn frá 2-3 gíg er mjög lítill ef einhver í leikjum)
DDR 2 móðurborð 15.000 (Ég nota Asus, það er tölvuvirkni. Seinna meir kemur DDR3 en það er enn soldið dýrt svo það er ódýrara skipta um bæði móðurborð og minni bara þegar hentar þér)
500gb disk 10.000 (nýji velociraptor frá WD ekki fáanlegur ennþá)
8800gts 512mb 30.000 (rosalega öflugt fyrir peninginn)
Kassi 15.000 (nógu góður til að hann þurfi ekki fara í ruslið við næstu uppfærslu)
orkugjafi 10.000 (borgar sig aldrei að spara í þeim þegar þú ert með dýran eða afkastabúnað)
Samsetning 5.000
= 112.500
Veit ekki með Windows XP
Getur samt ekki keyrt Crysis, Assasins creed eða álíka í max quality.
Svo geturðu bara valið þér verslun til að fjárfesta í , nógu lík verð allsstaðar ef þú ert ekki með skoðanir á framleiðendum.