Síða 1 af 1
Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Fös 25. Apr 2008 01:16
af DoofuZ
Jæja, nú er ég að fikta með eitt móðurborð og er meðal annars að skifta um viftu á örgjörvakælingunni og setja nýtt lag af kremi á örgjörvann en svo datt mér í hug að gera aðeins meira en bara það og ákvað að kíkja aðeins á Northbridge og heatsinkið á því. Mér datt í hug að taka heatsinkið af og setja nýtt lag af kremi undir það líka en eftir að ég losaði báðar festingarnar á heatsinkinu þá reyndist það samt vera ennþá svoldið fast við móðurborðið svo ég reyndi að toga í það og tókst svo að losa það nánast alveg af nema það var einn punktur undir sem var aðeins meira fastur svo ég togaði aðeins betur og náði síðan að lokum að taka það alveg af en þegar ég sá undir heatsinkið þá fór ég að sjá svoldið eftir að hafa tekið það af (sjá mynd)

Gerði ég einhverja vitleysu? Er þessi rifa undir heatsinkinu vandamál? Get ég lagað þetta með smá þrifum og nýju lagi af kremi?

Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Fös 25. Apr 2008 08:47
af TechHead
Gúmmí hringurinn sem þú reifst er til þess gerður að vernda "kjarnann" á norðurbrúarpakkanum frá því að skemmast.
Það virkar þannig að hann heldur norðurbrúar heatsinkinu level við kjarnann svo heatsinkið brjóti ekki kjarnann.
Þetta er svo lítil rifa að það ætti ekki að koma að sök, farðu bara varlega þegar þú setur heatsinkið aftur á (ekki halla því).
Já og mundu líka að þrífa gamla kælikremið af með hreinsuðu bensíni og setja nýtt á milli.
Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Fös 25. Apr 2008 17:16
af DoofuZ
TechHead skrifaði:Já og mundu líka að þrífa gamla kælikremið af með hreinsuðu bensíni og setja nýtt á milli.
Hreinsuðu bensíni? Hvar fæ ég svoleiðis? Á næstu bensínstöð kannski? Get ég ekki notað eitthvað annað? (aldrei tekið heatsink af Northbridge áður

)
Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Fös 25. Apr 2008 17:41
af Xyron
Aceton (aka. naglalakahreinsir) hefur reynst mér vel.. þó svo það taki frekar langan tíma að ná kælikreminu almennilega af.
Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Fös 25. Apr 2008 19:30
af TechHead
DoofuZ skrifaði:TechHead skrifaði:Já og mundu líka að þrífa gamla kælikremið af með hreinsuðu bensíni og setja nýtt á milli.
Hreinsuðu bensíni? Hvar fæ ég svoleiðis? Á næstu bensínstöð kannski? Get ég ekki notað eitthvað annað? (aldrei tekið heatsink af Northbridge áður

)
Færð hreinsað bensín í næsta apóteki.

Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Sun 27. Apr 2008 12:19
af DoofuZ
Get ég ekki notað eitthvað annað en hreinsað bensín? Hvernig nota ég það annars? Set ég bara smá í pappír og þurka svo af? Get ég svo nokkuð fengið einhverstaðar svona efni eins og þetta gula sem ég reif af? Veit að ég þarf það pottþétt ekki en bara að spá svoldið í þetta

Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Mán 28. Apr 2008 16:10
af DoofuZ
Jæja, þar sem ég nenni ekki útí næsta apótek (líka svoldið langt að fara fyrir mig) þá ætla ég bara að nota Aceton. Er ekki alveg alltílagi að nudda því á með wc pappír frekar en bómul? Og afhverju þarf að nota Aceton/hreinsað bensín til að hreinsa kremið af þessu en ekki af örgjörvanum og þvi? Var að sjá það að kremið undir heatsinkinu er reyndar töluvert þykkara en það sem var á örgjörvanum svo það er greinilega ekki beint hægt að þurka það bara af. Er þá alveg allt í lagi að setja sama krem á bæði örgjörva og norðurbúnna?
Veit ég spyr svoldið mikið en ég hef aldrei áður fiktað svona í norðurbrúnni

En með fiktinu lærir maður

EDIT: Er búinn að þrifa kremið nánast alveg af sjálfu heatsinkinu

Á ég svo að þrífa norðurbrúnna alveg eins, bara með Aceton og pappír eða?

Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Þri 29. Apr 2008 10:13
af mind
Þú getur notað Aceton og þú getur notað wc pappír. Það er bara ekki eins ráðlegt og tekur aðeins lengri tíma.(maður myndi til dæmis sennilega ekki gera það með 40þús króna örgjörva) Sumir grípa til þess að nota bómullarhnoðrana sem kvenkyns þjóðfélagið notar til að hreins á sér andlitið.
Aceton / hreinsað bensín er bara svakalega góður leysir á lifræn efni, lím og fleira svo jú þú myndir nota þetta líka á örgjörvann.
Málið með t.d. northbridge er að þú kemmst stundum ekki alminnilega að því svo það er nóg að setja nokkra dropa og strjúka af og þá er mest farið.
Aceton / Hreinsað bensín gufar svo bara upp.
Það er að öllu jöfnu í lagi að nota sama krem á flest alla örgjörva/chipset. Athugaðu samt að eina sem kremið gerir er að fylla uppí pínulitlar holur svo það myndist ekki hitavasar(heatpockets). Ef þú lætur of mikið krem þá einangrarðu bara örgjörvann / northbridge frá kælingunni svo yfirleitt er minna = betra.
Það láta yfirleitt allir of mikið af kremi(fyrir utan þá sem starfa við þetta)
Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Mið 30. Apr 2008 16:40
af DoofuZ
Ég hætti reyndar að nota wc pappírinn, fannst hann aðeins of grófur og pínu erfitt að nota hann þannig að ég keypti eyrnapinna og þeir hafa reynst mér mjög vel. Er svotil alveg búinn að hreinsa undir heatsinkinu, það er bara smá dökkur blettur eftir en allt kremið er amk. farið, og svo er norðurbrúin líka orðin mjög fín en bara svona til að hafa allt fullkomnlega á hreinu þá er hér mynd af henni, er þetta ekki bara nógu fínt?

Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Mið 30. Apr 2008 17:13
af mind
Dökka dótið er alltaf , átt ekkert að hreinsa það af.
Engin ástæða til að gera þetta fínara, þú ert að fara skíta þetta aftur út eftir smá stund

Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Mið 30. Apr 2008 17:16
af DoofuZ
Jamm

Er einmitt að fara að gera það bara núna

Ætla að skella kremi á og sjá svo hvort ég geti ekki sett kvikyndið í gang. Vil þakka góð svör fram að þessu

EDIT: Eitt reyndar í viðbót, hvort er sniðugara að setja krem undir heatsinkið eða bara á litla flötinn á norðurbrúnni?
Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Mið 30. Apr 2008 18:54
af Xyron
Ég hef sjálfur alltaf bara sett lítinn blett á miðjuna á chip-inum, hefur reynst mér vel.
Re: Spurning varðandi Northbridge + heatsink
Sent: Mið 30. Apr 2008 19:02
af mind
Tek undir það með Xyron, láta kremið á chipsettið sjálft.
Þarft ekkert að vera smeykur við að taka heatsinkið af, hreinsa upp og gera aftur ef þú heldur þú hafir sett of lítið/mikið.
Rétt magn er auðveldast að finna með að það þekur allan snertiflötinn og fer örlítið útfyrir.