Síða 1 af 1

Hár hiti?: 8800GT 512 Foxconn OC

Sent: Fim 24. Apr 2008 23:03
af Selurinn
Jæja Vaktarar, ég er með smá vandamál hérna en grunar svona stórlega hvað það sé en vil samt fá álit á þessum vanda.
Er með 8800GT Foxconn kort og er búinn að eiga það í sirka 3 mánuði, en svo allt í einu tekur kortið á því þegar ég er í Call of Duty 4 sirkabout 15-30 min að hljóðið frýs og það kemur bara svört mynd á skjánum og hann slekkur á sér.
Fyrst hélt ég að þetta væri bara leikurinn, en síðan þegar það sama fór að gerast í Assassin's Creed þá fór mig að gruna að eitthvað væri að kortinu. (Ofhitnun?)
Kortið mældist 75°C (Everest) eftir að ég reboota tölvu eftir lock-up, er það nokkuð of hátt?
Mældist 80°C (Everest) eftir að 3DMark var búinn að keyra öll test í max gæðum.
Mældist 90°C (Everest) eftir að ég spilaði leikinn Red Valley í gegnum 3DMark 2006 og droppaði strax eftir það í 83-85°
Vegna þess að þetta gerist bara í leikjum þá grunar mig að þetta sé kortið.
Búinn að sækja nýjasta Nvidia driverinn og uppfæra DirectX en það hjálpaði ekkert.
Er eitthvað sem ég get gert til að koma í veg fyrir að ég þurfi að fara þangað sem ég keypti það og setja það á verkstæði örugglega tvær vikur og þvílíkt vesen. Get ég nokkurnveginn reddað þessu sjálfur? Veit t.d. ekkert hversu hratt viftan snýst og annað til að hugsanlega kæla það meira.

Hvað mynduð þið ráðleggja mér í þessu?
Get ég reddað þessu einhvernveginn, þ.e.a.s með RivaTuner til að hækka snúninginn á kælinguna vegna þess að þessi kassi kælir dótið ekki beint vel, mjög lítill og loftflæðið ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Hvað ráðleggið þér mér kæru menn?
ATH! Er ekki að yfirklukka kortið, kemur pre-overclocked frá framleiðanda. 660 Core og 1940 Memory
Tengist þessu hérna:
viewtopic.php?p=166037
Grunar stórlega að hitinn á kortinu sé of hár :S

Kveðja.....Selurinn

Hardware:
P35-DS4
Q6600 stock speed með Vindicator OCZ
Geil Black Dragon 4x1g 800mhz 4-4-4-12
8800GT Foxconn OC (factory OC) 660/1940
550W Coolmax PSU 140mm fan
Windows Vista Home Premium 32-bit

Re: Hár hiti?: 8800GT 512 Foxconn OC

Sent: Fös 25. Apr 2008 00:25
af Klemmi
Getur byrjað á því að útiloka þetta með því að nota annað skjákort í vélinni og sjá hvort vandamálið haldi þá áfram eða ekki ...
Annars, hvar býstu við 2 vikna biðtíma á ábyrgðarviðgerð ?

Re: Hár hiti?: 8800GT 512 Foxconn OC

Sent: Fös 25. Apr 2008 01:03
af Selurinn
Ég gerði fan speed profiles í gegnum RivaTuner og setti þá 60% 80% og 100% profiles.
Þá 100% fyrir 81-90°
80% fyrir 71-80°
60% fyrir 61-70°
Hitinn var ekki nema 71°C eftir loopuð 3dmark test.
Heyrist aðeins meira úr tölvunni núna en ég vona að ég hafi náð að redda þessu svona. (Er þá hugsanlegt að kortið var ekki nema á max 50-60% fan speed load áður og hafi þá valdið ofhitnun?)

ÉG var með fyrir 8800GTS 320mb og þá lennti ég í engu veseni með þetta, enda dual slot kort og hitinn á því var mun minni.
Tek fleiri test á morgun og checka á hvort þetta sé ekki örugglega stable hjá mér núna.

Re: Hár hiti?: 8800GT 512 Foxconn OC

Sent: Fös 25. Apr 2008 09:53
af Matti21
Alengt vandamál með BIOS-inn á 8800GT að viftan festist á 30%. Gerðist við mitt kort og ég hennti bara stock kælingunni af og skellti thermaltake DuOrb á kortið. Fæ 45° í load núna. Fór upp í 86° áður og kortið ofhitnaði tvisvar í Assassins Creed.
Ef þú getur lifað með hávaðann í stock kælingunni þá ætti þetta alveg að vera í lagi hjá þér. Annars mæli ég endregið með DuOrb.

Re: Hár hiti?: 8800GT 512 Foxconn OC

Sent: Fös 25. Apr 2008 11:00
af blitz
Accelero S1

Sennilegast besta kæling sem þú færð m.v. hávaða!

Bara verst að enginn selur þetta hérlendis

Re: Hár hiti?: 8800GT 512 Foxconn OC

Sent: Fös 25. Apr 2008 11:53
af Selurinn
Alengt vandamál með BIOS-inn á 8800GT að viftan festist á 30%. Gerðist við mitt kort og ég hennti bara stock kælingunni af og skellti thermaltake DuOrb á kortið. Fæ 45° í load núna. Fór upp í 86° áður og kortið ofhitnaði tvisvar í Assassins Creed.
Ef þú getur lifað með hávaðann í stock kælingunni þá ætti þetta alveg að vera í lagi hjá þér. Annars mæli ég endregið með DuOrb.


Já, skrambinn sjálfur ég held barasta að kortið hafið bara allan tímann verið eitthvað í kringum 30% allan tímann, vegna þess bara af því að setja viftuna á 60% þá heyrðist mun meira en hún gerði nokkurn tímann þrátt fyrir að vera á Load.

Hávaðinn er í sjálfu sér ekkert vandamál, nóg af öðrum tækjum hérna sem gefa frá sér meiri hávaða.

Var í Assassin's Creed núna samfleygt 3 tíma og ekkert crash, sýnist vandamálið úr sögunni.

Re: Hár hiti?: 8800GT 512 Foxconn OC

Sent: Fös 25. Apr 2008 12:00
af k0fuz
Matti21 skrifaði:Alengt vandamál með BIOS-inn á 8800GT að viftan festist á 30%. Gerðist við mitt kort og ég hennti bara stock kælingunni af og skellti thermaltake DuOrb á kortið. Fæ 45° í load núna. Fór upp í 86° áður og kortið ofhitnaði tvisvar í Assassins Creed.
Ef þú getur lifað með hávaðann í stock kælingunni þá ætti þetta alveg að vera í lagi hjá þér. Annars mæli ég endregið með DuOrb.


Gerist þetta líka á 8800GTS 512mb ?? Frá framleiðundunum Inno3D ?? Er nefnilega að hugsa um að fá mér það kort.

Re: Hár hiti?: 8800GT 512 Foxconn OC

Sent: Fös 25. Apr 2008 13:12
af Matti21
Nei eftir því sem ég best veit hefur þetta aðeins komið fyrir 8800GT kortin og á að vera búið að laga þetta í nýrri kortunum. "Selurinn" hefur sennilega bara lennt á gömlu eintaki. Lítið mál að laga þetta annars. Býrð bara til nýjan Fan controll prófíl í RivaTuner.

Re: Hár hiti?: 8800GT 512 Foxconn OC

Sent: Þri 06. Jan 2009 13:34
af Hyper_Pinjata
Úps...tók ekki eftir elli þráðarins...Sorry...

Re: Hár hiti?: 8800GT 512 Foxconn OC

Sent: Þri 06. Jan 2009 13:47
af vesley
9 mánaða gamall þráður...

Re: Hár hiti?: 8800GT 512 Foxconn OC

Sent: Þri 06. Jan 2009 14:24
af Allinn
Dálítið old