Síða 1 af 2

Amd eda Pentium ?

Sent: Mán 13. Okt 2003 17:46
af Corey
Ég er búinn ad velta þessu lengi fyrir mér. .. hvor sé betra Amd eða Pentium... ég er ad tjekka...


ég ætla ad fá mér annað hvort ég vil nota tölvuna mína í þunga og mikla vinnslu.. líka mjög mikið í leiki... hvor Örgjorfi er betri ?
endilega láta vita :) takk fyrir

Sent: Mán 13. Okt 2003 17:47
af Pandemic
Pentium rasskellir amd á alla vegu :D nátturulega úber dýrir

Sent: Mán 13. Okt 2003 17:50
af Corey
Heheh þú varst ekki lengi ad svara.. takk fyrir þad...


ég vil nota tölluna mína í þunga og mikla vinnslu.. ég þoli ekki töllur sem frosna stöðugt og eru leiðinlegar... og nota tölluna líka í leiki auddad :p

hvernig er Pentium þá betra en amd ?

Sent: Mán 13. Okt 2003 17:56
af Daz
Ég held að AMD rassskelli jafndýra intel örgjörva nú oftast.

Sent: Mán 13. Okt 2003 18:00
af gumol
Það held ég að sé rangt hjá þér

Sent: Mán 13. Okt 2003 18:01
af Voffinn
HVAÐ Í ANDSKOTANUM ER ÞETTA AÐ GERA Á "MULTIMEDIA" ÞRÆÐINUM ?

Sent: Mán 13. Okt 2003 18:46
af halanegri
Ég held að þeir rasskelli hvorn annan fram og til baka svo að það skiptir litlu hvað þú færð þér.....

Sent: Mán 13. Okt 2003 18:47
af RadoN
færa þráðinn! :)

Sent: Mán 13. Okt 2003 18:57
af Damien
Þetta er nú allt sama sullið...
Ég er með Intel og ánægður með það.
odinn er með AMD og það er að svínvirka...

AMD=Intel

Allavega eins og þetta er í dag.
Það var ekki þannig, en ég veit ekki hvað gerist þegar næsta kynslóð kemur út hjá báðum fyrirtækjum. :?

Sent: Mán 13. Okt 2003 19:05
af elv
Það á að brenna á mönnum augum fyrir að starta svona þráðum.
Svipað vitlaust og hvort er betra Ford eða Toyota :roll:

Sent: Mán 13. Okt 2003 19:09
af gumol
Frekar Bens og Toyota :)

Annars eru toyoya fínir bílar

Sent: Mán 13. Okt 2003 19:11
af Damien
Hmm hvor er Benz og hvor er Toyota??? :wink:

Sent: Mán 13. Okt 2003 19:14
af gumol
Intel = Bens/Porshe
AMD = Toyota

Sent: Mán 13. Okt 2003 19:14
af elv
Akkúrat, báðir hafa kosti og galla.







Smá gagnlausar upplýsingar.
Vitið þið að Benz eigendur eru mikið óánægaðri um bíla sína en Trabant eigendur, þýðir samt ekki að Trabant sé betri .......... eða hvað ;)

Sent: Mán 13. Okt 2003 19:14
af gumol
Svakalega vorum við samtaka að svara þessu.

Sent: Mán 13. Okt 2003 19:28
af MezzUp
*fært*

Re: Amd eda Pentium ?

Sent: Mán 13. Okt 2003 19:39
af legi
Well, ef þú vilt fá mikið fyrir peninginn kaupiru AMD.


Ef þú ert að fara að kaupa rándýran örgjörva kaupiru intel.


Ef þú ert að leita þér að örgjörva á bilinu 12-20 kaupiru þér AMD.


Staðreynd : AMD eru betri en sambærilegir intel örgjörvar í DirectX leikjum.

Staðreynd : Intel eru betri í video vinnslu.

Staðreynd : Betra að Overclocka Intel.

Staðreynd : þú færð meira fyrir peninginn í AMD.

Gumol : þetta er meira eins og að líkja saman ferrari og Lotus, mikill verðmunur svipað performance í sumu mjög ólíkt í öðru.

Í augnablikinu færðu öflugri Intel örgjörva en þarft líka að borga talsvert fyrir það.

Frábær kaup í 2500 XP barton og 2600 XP með 333 fsb.

Sýnist vera alveg þokkaleg kaup í 3000 XP ef þú ert að fara að eyða miklum peningum.

Góð kaup í Intel 2.4 Ghz ef þú ætlar að Overclocka einhvern helling.


Bara spurning um að velja og hafna.

Sent: Mán 13. Okt 2003 20:03
af gumol
2,4 GHz eru betri en 2500
Og það er betra að kaupa 2.8 GHz Intel í staðin fyrir 3000 XP

Sent: Mán 13. Okt 2003 20:23
af Daz
gumol: og þar liggur hundurinn grafinn, 2,4 ghz P4 800fsb kostar 20 þús meðan Amd 2500+ XP 333 fsb kostar 10 þús. Performance/price er hér augljóslega AMD í hag.

Sent: Mán 13. Okt 2003 20:29
af RadoN
ég er alveg sammála því

Sent: Mán 13. Okt 2003 20:40
af Daz
Eftir að hafa skoðað verðsamanburðinn hérna á Vaktinni þá kemst ég að þeirri niðurstöðu að þeir sem vilja vera á "the bleeding edge of technology" (s.s. með aðeins betri tölvu en það besta) þeir fjárfesta líklega í Intel. Þeir sem vilja vera með "budget" tölvu (án þess þó að hún sé neitt drasl, bara vandlega farið með peninga) þeir stefna á AMD. Merkilegt nokk þá er BT að selja langódýrustu Intel örgjörvana í dag, en því miður hafa þeir ekkert frá AMD (nema 2600+ en verðið á honum er "í vinnslu")

Sent: Mán 13. Okt 2003 20:44
af ICM
það er tilgangslaust að vera að eyða einhverju brjálæðislegu á örrana þar sem það er alltaf eitthvað nýtt á leiðinni og það nýjasta er hlutfallslega dýrara heldur en það á rétt á sér miðað við gömlu vörurnar.

Kaupið nógu góða tölvu og eyðið frekar þá meira á aukadót eins og ég, aukadótið endist í mörg ár... eins og teikniborðið sem ég er að leita mér að... hef meiri áhuga á því heldur en að uppfæra tölvuna meira

Sent: Mán 13. Okt 2003 20:50
af gumol
Æi ég nenni ekki að rífast um þetta lengur.
Þið megið fá ykkur AMD fyrir mér, ykkar val :)

Sent: Mán 13. Okt 2003 20:58
af RadoN
ég ætlaði að kaupa mér nýjan P4, nýtt móðurborð (vegna þess að ég er með AMD móðurborð núna) og nýtt skjákort.. en er hættur við það vegna þess að ég ætla einmitt frekar að kaupa mér eitthvað aukadót í tölvuna, svo þarf ég líka að kaupa mér nýjan skjá, og kanski nýtt lyklaborð (mitt verður oft "sambandslaust" og ég verð að ýta því mjög fast í PS/2 slottið), músin mín er eitthvað gamallt laser junk frá M$ (takkarinir eru orðnir lausir og lélegir), o.fl.

Sent: Mán 13. Okt 2003 21:02
af gumol
Talandi um það, ég varð 10 sinnum betri í CS eftir að ég fékk mér MX500