Síða 1 af 1

hjálp með hljóð!!!!

Sent: Lau 05. Apr 2008 11:37
af albertgu
Hæ ég er hérna með vandamál, hljóðið virkar ekki.

Það er eins og hljóðdriverinn hafi dottið út, þegar ég reyni að opna volume mixerinn kemur, "no audio output device is installed.

Ég er einnig með SteelSound 5h usb og ef ég tengi þau í fer allt hljóð á speakers :s

Hjálp plis

Re: hjálp með hljóð!!!!

Sent: Lau 05. Apr 2008 12:43
af Pink-Shiznit
Hvernig hljóðkort ertu með?

Re: hjálp með hljóð!!!!

Sent: Lau 05. Apr 2008 20:18
af albertgu
Sound Blaster X-Fi Xtreme

Re: hjálp með hljóð!!!!

Sent: Lau 05. Apr 2008 20:45
af Gets
Ekki veit ég um tölvukunnáttu þína og set því smá punkta hérna.
Smellir á Start/Control Panel/System/velur þar flipan Hardware og því næst Device Manager þarna sérðu hvort það vantar driver fyrir eitthvað hardware tölvunar.

Ef það er gult upphrópunarmerki við Sound þá getur þú prófað að setja driverinn inn aftur.
Hér er slóðin á driver fyrir kortið.
Í fyrsta ramma “1.Select your product” velurðu Sound Blaster en ekki X-Fi.
Velur síðan X-Fi í næsta ramma og að lokum það sem á við þína týpu í síðasta ramma fylgir svo bara leiðbeiningunum.
http://is.europe.creative.com/support/downloads/

Ef að þetta virkar ekki er komin upp sá möguleiki á að kortið sé bilað, en ef að tölvukunnátta þín er lítil þá væri gott fyrir þig að fá einhvern til að prófa kortið.
Gangi þér vel.