Síða 1 af 1
Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 17:23
af Turtleblob
Ég er búinn að vera að pæla í að fá mér teikniborð upp á síðkastið en er ekki alveg viss um hvert ég á að snúa mér í þeim efnum, hvað þarf maður að hafa þetta stórt? Maður hefur alltaf heyrt að Wacom séu best, en er það bara einhver heilaþvottur?
M.ö.o þá er ég að leita mér að tiltölulega ódýru teikniborði, þá er ég að tala um svona kannski 15þ - 25þ (30þ max).
Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 18:10
af kiddi
Wacom er best, það er engin lygi og engar ýkjur - það tekur því ekki að kaupa sér Trust/sambærilegt "low-budget' borð.
Wacom ódýru borðin eru samt ekkert sérstök, þ.e. Grapphire og þau. Intuos er stálið, en djöfull er það dýrt.
Stærðin skiptir ekki eins miklu máli og gæðin, lítið Intuos sigrar stórt Grapphire. Stærð borðanna er bara spurning um að venjast. Færustu menn geta notað minnstu Intuos borðin og vanist vel.
Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 19:06
af Turtleblob
Hvar eru þau ódýrust hér á landi/Hvar er mesta úrvalið?
Ætti maður kannski að reyna að redda þessu í gegnum útlöndin?
Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 19:19
af kiddi
Þeir helstu sem ég veit af eru eftirfarandi:
Apple IMC - besta úrvalið, þeir eiga nánast alla Intuos3 línuna, sjá hér:
http://www.apple.is/vorur/aukahlutir.pdf (bls 5)
- þú sérð að minnsta borðið, álíka stórt og póstkort, kostar 30þúsund. A4 stærðin kostar 55þúsund
Tölvulistinn - þeir eiga 'Bamboo' línuna, sem er fyrir börn & kröfulitla byrjendur sem langar að fikta, ásamt því að bjóða uppá sérpöntun á A4 Intuos borði, á litlar 80 þúsund krónur.
Computer.is - þeir eiga eingöngu 'Bamboo' línuna (myndi láta bamboo eiga sig nema þú viljir bara fikta)
- Eitt get ég lofað þér samt, ef þú kaupir Intuos borð, þá mun það endast þér svo lengi sem USB staðallinn er við lýði. Ég á eitt 18 ára gamalt Intuos teikniborð sem virkar ennþá í dag - á tölvum sem eru ennþá með gamla góða 9 pinna serial tengið

Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 19:26
af Turtleblob
Gúglaði Wacom á íslensku og fékk upp Tölvuvirkni með
þetta.
En það er allt sem ég finn sem ekki var á listanum hjá kidda. Líst ágætlega á þetta, fer eftir útborguninni náttúrulega en hvað finnst ykkur?
Já, varðandi Intuos kvikindin er ég ekki alveg tilbúinn í fjárfestinguna, kannski ef maður finnur að maður hefur einhver not fyrir þetta.
Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 21:06
af mind
Hef ekki persónulega reynslu af þessu en ég veit flestir sem handteikna nota Wacom.
Ef ég man rétt þá er Wacom borð tengt í Max versluninni í holtagörðum, kannski bara best að fara prufa.
Ætli Apple sé með uppsett borð til að prufa ?
Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 21:19
af GuðjónR
mind skrifaði:Hef ekki persónulega reynslu af þessu en ég veit flestir sem handteikna nota Wacom.
Ef ég man rétt þá er Wacom borð tengt í Max versluninni í holtagörðum, kannski bara best að fara prufa.
Ætli Apple sé með uppsett borð til að prufa ?
MAX...verslar einhver þar??
Hef aldrei komið til þeirra í Holtagarða, kíkti á þá daginn eftir opnun í Garðabæ/Hafnarfirði og sá strax í gegnum lélega auglýsingamennsku.
Þóttust vera með allskonar tilboð en í raun var þetta allt dýrara en á "venjulegu" verði í ELKO.
Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 21:39
af Turtleblob
En samkvæmt lélegustu heimasíðu fyrir tölvuverslun sem ég hef nokkurntímann séð þá segja þeir:
Bjóðum ávallt besta verð á markaðnum!
Þoli virkilega ekki að finna ekkert á heimsíðunni.
Á samt pottþétt eftir að kíkja þangað niðureftir áður en ég kaupi eitthvað.
Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 22:01
af Dazy crazy
Lenti í svipuðu um daginn, ætlaði að kíkja á þessa snilldar vekjaraklukku sem maður þarf að elta (Elska að snoza) en gat ekki einu sinni fundið hvort þeir væru einu sinni að selja það. hrmpf.
Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 22:03
af mind
Að gefinni reynslu við ELKO og B.T. myndi ég frekar versla í Max eða Tölvuvirkni.
Mér er alveg sama um verðið þannig séð, það er á minni ábyrgð að komast að því hvar varan er ódýrust fyrir mig, svo ég er bara þakklátur fyrir meiri samkeppni.
Hinsvegar hef ég ekki þolinmæði til að bíða eftir þjónustufólki í 20 mínótur og svo veit það ekki einusinni hvort PS3 er til hjá þeim og hefur engann vilja til að komast að því fyrir mig heldur kemur sér bara úr samtalinu og fer að gera eitthvað annað.
En ég tek undir þetta með heimasíðuna, ég vil að allar búðir séu með heimasíður og þær séu uppfærðar með hvað varan kostar og hvort hún er TIL!
Þesi vekjaraklukka er held ég líka í holtagörðunum , sá hana bara í dag þeysast um gólfið hjá þeim og einhver gaur að reyna ná henni, bara fyndið. Kostar 5 eða 6þús kall samt :/
Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 22:11
af Dazy crazy
Já, ætla að fá mér svona en þyrfti líklega að taka til ef hún ætti að gera eitthvað gagn. Bíbbíbbíbb, brúmm - af borðinu og föst.

Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 22:22
af Turtleblob
Dazy crazy skrifaði:Já, ætla að fá mér svona en þyrfti líklega að taka til ef hún ætti að gera eitthvað gagn. Bíbbíbbíbb, brúmm - af borðinu og föst.

Gætir náttúrulega bara rutt smá braut í gegnum draslið, ég myndi allavega ekki nenna að taka til bara vegna þess að mig langaði í kúl vekjaraklukku.
Re: Teikniborð
Sent: Sun 30. Mar 2008 22:55
af Dazy crazy
Það er ekki bara það að mig langi í kúl vekjaraklukku heldur líka það að stundum snoza ég og vakna svo bara ekki aftur fyrr en ég er ekki lengur þreyttur.