Síða 1 af 1

Prentara Driver Sérfræðingar ? Canon iP6000D Vista 64bit

Sent: Sun 30. Mar 2008 12:59
af eta
Daginn

Er með Canon iP6000D keyrandi á WinXP (32bit) vél,
get tengst prentaranum frá WinXP(32bit) og Vista(32bit)
en ekki frá Vista (64bit)

Búinn að installa 64bit driver frá canon á báðum vélunum.

Einhver með lausn á þessu :(

Spurning hvort WinXP vélin sem er að keyra prentaran þurfi að vera serverútgáfa.... til að geta verið með bæði 32bit dirver og 64bit drivera....

Hélt samt að það þyrfti nú ekki á vélina sem er með prentaran...

Takk fyrir.

Re: Prentara Driver Sérfræðingar ? Canon iP6000D Vista 64bit

Sent: Sun 30. Mar 2008 21:01
af mind
Útfrá minni reynslu virkar þetta svona ef þú ert að nota windows share.

Tölvan sem er tengd við prentarann notar sinn driver. (32bit í þessu tilviki)

Ef þú ætlar að deila honum á t.d. innanhúsneti með öðrum tölvum þurfa þær yfirleitt að ná í nákvæmlega sama driver(sem kemur sjálfkrafa frá "server" vélinni) eða þú þarft að setja hann upp sjálfur með því að downloada honum og vísa á prentarann á tölvunni.

Það sem er líklega að ské er að þú ert með 64-bit driver sem vill ekki sjá/nota 32-bit prentara(prentarinn sjálfur er það ekki en tölvan telur það þar sem hann keyrir á 32-bit vél). Eða það er ósamræmi á milli drivers sem þarf að nota á prentarann(32-bit) og þess sem þú vilt nota (64-bit).

Þannig ef þú værir með 64-bit tölvu með 64-bit driver ættu aðrar 64-bit tölvur tengst honum.

Ekki taka þessu samt sem algildu hjá mér, það eru nokkuð margir hlutir sem gætu orðsakað þetta, ég veit bara að prentarar yfir net eru einstaklega picky á drivera. Og Canon, Epson, HP og Lexmark nota allir smá mismunandi leiðir.

Lausnir:
Fá nettengdan prentara
Kaupa prentpung 6-20þús kall yfirleitt.
Ná í 3aðila forrit sem sendir upplýsingarnar í grafísku formi á "server" vélina og hún sé svo um að prenta þetta út með sínum rekli.