Síða 1 af 1
AMD dual borð
Sent: Fös 10. Okt 2003 17:30
af elv
Vitið þið um einhverja sem selja Dual socket borð, hef bara séð Asus borðið á Computer.is finnsta það aðeins of dýrt miðað við hvað þetta er gamalt
Sent: Lau 11. Okt 2003 20:12
af Hlynzi
Boðeind eru líka með þannig.
Að vísu var það server borð, ég spurði þá hvað dual opteron 64 bita borð myndi kosta, það var víst yfir 100 kallinn.
Sent: Lau 11. Okt 2003 20:23
af elv
Hmmmm sé ekkert á síðunni þeirra
Sent: Lau 11. Okt 2003 21:30
af GuðjónR
geggjað ætli það sé hægt að fá DUAL AMD64???
Sent: Lau 11. Okt 2003 22:11
af Voffinn
GuðjónR skrifaði:geggjað ætli það sé hægt að fá DUAL AMD64???
Ertu eitthvað veikur guðjón minn? Ég er farinn að hafa áhyggjur af þér...
Sent: Lau 11. Okt 2003 22:28
af aRnor`
Spurning um að hann hafi farið öfugum megin uppúr rúminu í morgun

Sent: Lau 11. Okt 2003 22:49
af elv
GuðjónR skrifaði:geggjað ætli það sé hægt að fá DUAL AMD64???
Held ekk,i kannski FX
Sent: Sun 12. Okt 2003 00:31
af halanegri
Þetta er farið að verða nokkuð alvarlegt, hann GuðjónR er búinn að klára þónokkrar setningar um AMD í röð án skítkasts, og meira að segja kominn með AMD avatar. Er ekki allt í lagi ?!!?!?

Sent: Sun 12. Okt 2003 00:47
af gumol
Ertu ekki að fatta þetta halanegri?
Sent: Sun 12. Okt 2003 02:46
af halanegri
huh?
Sent: Mán 27. Okt 2003 17:03
af Bendill
Það er nú einhverjir mánuðir síðan AMD Opteron örrinn kom á markað. Hann er hinsvegar ekki hugsaður sem desktop örri, frekar gerður fyrir servera. Það má ekki rugla honum saman við Athlon64, þótt þeir séu báðir 64 bita þá er Athlon64 ætlaður fyrir desktop vinnlsu. Ég er ekki klár á hvort Athlon64 sé væntanlegur í SMP uppfærslu, ég efast það. En annars er Opteron server örgjörvi og kemur aðeins í SMP uppfærslum skilst mér, þá 2x 4x eða 8x og er afskaplega dýr, sem og móðurborðin
