Síða 1 af 1

Seagate úr 52.000 kB/s í 16.000 kB/s á hálfu ári

Sent: Fös 10. Okt 2003 13:57
af Tiger
Sælir/sælar... er með 2x120GB seagate baracuda harða diska sem ég raida 0. Þegar ég fékk þá þá gerði ég test með sisoftsandra og fékk út 52.000kB/s en í gær eru þeir komnir niður í 16.000 kB/s!!!!! Nýbúinn að defragmenta. tölvan er öll hæg og aumingjaleg. Tekur t.d. 9 sec að opna Outlook :shock: Er með ASUS A7N8X dl og xp 2400 512 MB pc3200 minni.. Búinn að renna SMART testi og fleirra sem seagate býður uppá og ekkert virðist vera að þeim..... Any Ideas???

Sent: Fös 10. Okt 2003 14:03
af kiddi
Þetta onboard IDE-RAID er ekki alvöru :( Prófaðu að slíta diskana í sundur (RAID keðjuna þ.e.) og prófa þá sem staka.

Sent: Fös 10. Okt 2003 16:58
af Tiger
Já ef ég geri það þá þarf ég að setja allt uppá nýtt og öll mín 130GB af tónlist og bíómyndum er fyrri bí ekki satt??

Sent: Fös 10. Okt 2003 23:24
af Spirou
Tiger skrifaði:Já ef ég geri það þá þarf ég að setja allt uppá nýtt og öll mín 130GB af tónlist og bíómyndum er fyrri bí ekki satt??


sko þú getur alveg sagt bæ bæ við þessi gögn hvort sem er því þú ert með 240Gb á RAID 0
Þú ert að leika þér á jarðsprenjusvæði. Þú átt alls ekki að geyma neitt á RAID 0 nema að þér sé alveg sama um öll gögnin sem eru geymd á því.

Sent: Lau 11. Okt 2003 02:05
af GuðjónR
Gæti lagast með því að deleta winblows og setja það upp á nýtt ;)

Sent: Lau 11. Okt 2003 02:06
af RadoN
já.. bara delete'a því :wink: (Ctrl+A -> Shift+Del)

..og boota upp linux? :P

Sent: Lau 11. Okt 2003 08:39
af gumol
Það gerir lítið gang fyrir hann úr þessu.

Re: Seagate úr 52.000 kB/s í 16.000 kB/s á hálfu ári

Sent: Mið 15. Okt 2003 18:22
af Fox
Tiger skrifaði:Sælir/sælar... er með 2x120GB seagate baracuda harða diska sem ég raida 0. Þegar ég fékk þá þá gerði ég test með sisoftsandra og fékk út 52.000kB/s en í gær eru þeir komnir niður í 16.000 kB/s!!!!! Nýbúinn að defragmenta. tölvan er öll hæg og aumingjaleg. Tekur t.d. 9 sec að opna Outlook :shock: Er með ASUS A7N8X dl og xp 2400 512 MB pc3200 minni.. Búinn að renna SMART testi og fleirra sem seagate býður uppá og ekkert virðist vera að þeim..... Any Ideas???


Sæll.

Uninstallaðu driverunum fyrir diskstýringuna, og settu upp þá nýjustu.

Ertu með Hardware eða Software RAID?

Algjör óþarfi að slíta RAID keðjuna, þetta er pottþétt reklavandamál.

Sent: Mið 15. Okt 2003 18:42
af Daz
kannski kjánalegt, en ertu búinn að vírusskanna nýlega?