Síða 1 af 1
Fm Sendar fyrir Ipod
Sent: Mið 12. Mar 2008 02:12
af Son of a silly person
Góðan daginn. Ég er að spá ef þú hefur svona sendir tengdan við ipod og sendir út ákveðna tíðni. Ég spyr heyrnatól (rauð Peltor með innbyggðu útvarpi) Ná þau ekki sambandi? Spyr sá sem heimskur er.
Ég er að vinna í verksmiðju þar sem mikill hávaði er og notast ég við svona Peltor tól. Mikið er ég orðinn þreyttur á útvarpsstöðvum íslands. Þessvega er ég að spyrja hér, hvort þetta virki. Ég meina svona fm sendir er bara eins og almennt loftnet nema nær styttra.
Ragnar
Sent: Mið 12. Mar 2008 03:11
af zedro
Jebb you go girl

Sent: Mið 12. Mar 2008 09:43
af hagur
Ætti að virka fínt, en passaðu þig bara á að fá þér sendi sem dregur rafmagn úr IPoddinum sjálfum, en ekki svona sem þarf að tengjast við sígarettukveikjara, nema þú kærir þig um að vera með rafgeymi í bakpoka

Sent: Mið 12. Mar 2008 16:20
af ManiO
Gætir svo alltaf riggað þinn eiginn sendi, væri hryllilega ljótur og frekar stór en hann myndi slá öllum sendum til sölu út. Þetta er líka kolólöglegt, en síðan hvenær hefur það stoppað einhvern.
Sent: Mið 12. Mar 2008 16:22
af Yank
Það tapast nokkur hljómgæði með svona sendum.
Sent: Mið 12. Mar 2008 19:34
af Snorrmund
Lika hægt að fá peltorana með line in tengi

Sent: Mið 12. Mar 2008 21:35
af Son of a silly person
Já ég hef heyrt að það sé smá hljóð missir með þessa senda. En ekki hafði ég heyrt um line in á svona tækjum. Það er þá nýtt. Ég skoða þetta og skelli mér örugglega á tæki með line ferkar en fm sendi. Ég deili ekki tónlist með þeim sem ég vinn með

Annars var það tlgangurinn að leyfa örðum að hlusta líka.
Ragnar
Sent: Mið 12. Mar 2008 23:57
af HR
Þessi virkar fín
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... ry_id=1052
Ég á sjálfur svona, notaði þetta á ferðalagi um daginn til að vera DJ í bílnum
