Síða 1 af 1
Zone Alarm software firewall
Sent: Fim 09. Okt 2003 23:30
af odinnn
ég var að fá mér ADSL og datt þá í hug að þar sem tölvan er mikið í gangi og kannski ekki alltaf verið að fylgjast með henni að setja upp eitt stikki firewall. það fyrsta sem ég gerði þegar ég var kominn með ADSL-ið var að tékka á hraðanum og var að skoða static.hugi.is og fann þar einhvern firewall og náði náttúrulega í hann. nú er ég búinn að setja hann upp og að er allveg trilltur að stoppa einhverja "hakkara". á síðustu 10 mín hafa verið 150 tilraunir til að komast inní tölvuna mína.
eru margir að nota svona firewall eða kannski einhvern annan sem er betri?
Sent: Fim 09. Okt 2003 23:44
af gumol
Er þetta Zone Alarm eða Segate firewall?
Sent: Fim 09. Okt 2003 23:52
af gnarr
gumol: gleymdiru að lesa topicið

Sent: Fim 09. Okt 2003 23:54
af gumol
Vá, afhverju getur fólk ekki skrifað það sem það vill tala um í bréfin sjálf!
Sent: Fös 10. Okt 2003 07:52
af Gothiatek
Ég hef notað þennan eldvegg, er kannski ekki alveg að fá 150 árásir per 10 mín.
Það sem er einnig áhugavert eru þau forrit sem reyna að komast út á netið frá tölvunni þinni......!!!
Sent: Sun 12. Okt 2003 14:50
af Daz
Ég notaði Zonealarm lengi og var mjög ánægður með hann (fékk í það minnsta mikla öryggistilfinning

). Svo komst ég að því að ZA corruptar flest öllum downloadum hjá mér, varð brjálaður og eyddi öllu sem byrjar á Z úr tölvunni. Núna er ég óöruggur en get notað það sem ég sæki af netinu.