Síða 1 af 1
Hvaða forrit notið þið til að overclocka?
Sent: Lau 08. Mar 2008 21:35
af albertgu
Hvaða forrit notiði til að overclocka skjákort - örgjörva ? minni ?
Sent: Lau 08. Mar 2008 21:47
af Dazy crazy
Fyrir örgjörva og minni er öruggast að nota bara biosinn.
Sent: Lau 08. Mar 2008 21:54
af albertgu
og link eða what hvað það ?
Sent: Lau 08. Mar 2008 21:59
af Gúrú
Hehehehhe
Made my day, kannski 6 mohitos hafi hjálpað til við það
Link er í Control Panel ^^
Sent: Lau 08. Mar 2008 22:03
af albertgu
nafn er með vista
Sent: Lau 08. Mar 2008 22:42
af coldcut
...and they just keep getting better! ;D
Sent: Lau 08. Mar 2008 22:46
af Windowsman
And they say the young people aint charming today!
Sent: Lau 08. Mar 2008 22:56
af Gúrú
And they say us Icelanders speak bad english!
LÁGMARKS sjálfsbjörgun að googla BIOS í staðinn fyrir að biðja um LINK FOR CRYING OUT LOUD

Sent: Lau 08. Mar 2008 22:57
af zedro
Í þínu tilviki mæli ég mót því að þú reynir að yfirklukka,
það getur bara endað með ósköpum

Sent: Lau 08. Mar 2008 22:58
af Gúrú
Zedro ertu starfsmaður hjá Kísildal eða bara linkari?
Sent: Lau 08. Mar 2008 23:02
af zedro
Happy customer

Sent: Lau 08. Mar 2008 23:06
af Dazy crazy
Hann er nú bara fan minnir mig að hann hafi sagt í einhverjum póstinum, Right? og ég skil það alveg. Gaurinn þar er með mikla hæfileika og reynslu varðandi þennan hlut sem verið er að ræða hér. Já yfirklukkun, þó reyndar að örrinn minn eða móðurboðið hafi verið óþekk (quad þurfti 1,42v fyrir 2,8GHz) þá treysti ég því sem hann segir og gerir.
Sá sem veit ekki hvað BIOS er ætti að láta yfriklukkun vera þangað til hann er búinn að átta sig á því að breyta a.m.k boot order. Hehe og lesa sér til um það. (eins og ég gerði*hóst hóst*)
Sent: Lau 08. Mar 2008 23:10
af zedro
dagur90 skrifaði:Sá sem veit ekki hvað BIOS er ætti að láta yfriklukkun vera þangað til hann er búinn að átta sig á því að breyta a.m.k boot order. Hehe og lesa sér til um það. (eins og ég gerði*hóst hóst*)
Word!
Sent: Lau 08. Mar 2008 23:12
af Yank
Notar nTune til að yfirklukka Nvidia
Sent: Sun 09. Mar 2008 19:21
af Dr3dinn
This post just saved my day!
Held að sumt hérna teljist undir fína skemmtun frekar en yndislestur

Sent: Mán 10. Mar 2008 09:43
af ÓmarSmith
Stofnandi þráðarins ætti virkilega að endurskoða þessa pælingu.
Ef þú veist ekki hvað BIOS er þá snerrtiru ekki neitt sem heitir Yfirklukkun.
Haltu þig við Minesweeper
Ef þú hefur áhuga á OC, þá skaltu fá e-n til þín sem hefur reynslu og láta hann koma því í verk fyrir þig.
Sent: Mán 10. Mar 2008 10:03
af Selurinn
Eða farið mína leið og halda vélbúnaða BBQ fest til að læra
Kveðja........Níðingurinn
Sent: Mán 10. Mar 2008 10:56
af Yank
Hvernig væri að þið mynduð kenna þessum guttum frekar en að gera þá að háði?
Hefði haldið að vaktin.is ætti að vera ágætur vettvangur fyrir þá sem minna kunna að leita eftir hjálp, hjá þeim sem meira eiga að kunna.
Sumir ykkar sem hafið póstað á þessum þræði búið t.d. ekki yfir mikilli þekkingu þegar kemur að yfirklukkun að mínu mati. Þannig afhverju eruð þið að slá ykkur til riddara?
Sent: Mán 10. Mar 2008 12:05
af Selurinn
Albertgu
Hvaða örgjöva, móðurborð, skjákort ertu með?
Ég skal glaður benda þér á leiðbeiningar en það væri fyrst gaman að vita hversskonar vél þú ert að keyra.....
Getur hinsvegar byrjað að kíkja á þetta til að læra fyrst og fremst fræðilega hlutann á bakvið þetta.
Annars eru til forrit fyrir yfirklukkun en það fer eftir því hvernig móðurborð þú ert með.
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=1990
Sent: Mán 10. Mar 2008 15:39
af ÓmarSmith
Eins og ég sagði
"Ef þú hefur áhuga á OC, þá skaltu fá e-n til þín sem hefur reynslu og láta hann koma því í verk fyrir þig."
Þetta er bara lang skynsamasta hugmyndin miðað við að maðurinn veit ekki hvað BIOs er. Það segir sig nokkurn veginn sjálft.
Hann gæti þá lært í leiðinni ÁN þess að skemma neitt hvað BIOS er og hvað hann gerir t.d , og séð hvernig menn yfirklukka að öllu jöfnu.
Ég lærði helling af því að sjá mann gera þetta í fyrsta skipti og get ekki ýmindað mér að það saki fyrir neinn að vera bara spectator til að byrja með.
Einnig erum við að gera kannski viðkomandi greiða með að vera ekki að henda honum í djúpu laugina því , great, ef hann færi að fikta sjálfur og myndi grilla vélbúnaðinn sinn yrði hann eflaust ekkert rífandi glaður.
Ps, ég var ekki að meina þetta í fyrra innleggi sem e-r kaldhæðni heldur bara finnst mér gefa augaleið að sá er ekki veit hvað BIOS er ætti auðvitað ekkert að fikta með OC.
Ekkert frekar en sá sem ekki veit hvað heddpakkning ætti klárlega ekki að fara að tjúna vélina í bílnum hjá þér eða eiga við hann
Þið fattið samlíkinguna.