Woods, ég get fullyrt að þú finnur sáralítinn mun á 2.53(533) og 2.8 (800) í mestallri vinnslu, ég nota 2.4(533) heima og 2.8(800) í vinnunni og það er örsjaldan sem ég tek eftir einhverjum mun sem vert er að segja frá. Ekki beint uppfærsla sem borgar sig.
Ég myndi bíða í amk 6mánuði í viðbót áður en ég færi jafnvel að *íhuga* uppfærslu, stökkið á milli uppfærsla þarf að vera svolítið stórt svo maður sjái ekki eftir peningunum.
SATA diskar eru ekki ennþá orðnir spennandi, þetta er pottþétt framtíðin en í bili held ég að ATA100/IDE sé alveg fínt.
DualDDR er svolítið sem er rosa erfitt að sjá með berum augum, ég tek bara eftir kostum DualDDR í videovinnslu, þar sem bandvíddarinnar er þörf.
RAID möguleikar hljóma vel en það eru bara hörðustu nöttararnir sem nenna að standa í því að útvega sér 2x+ identical diskum og fútla í þessu, að auki tel ég að venjulegt RAID sé ekkert að skila sér í hefðbundinni heimilistölvu undir hefðbundnum kringumstæðum (tölvuleikir og vídjógláp)
FireWire er eiginlega bara fyrir iPod'darana & DV-video dundara.
Ég segi, bíddu með uppfærslu
