Síða 1 af 1

Gigabyte skjákorts reklar

Sent: Þri 04. Mar 2008 19:13
af Selurinn
Er eitthvað betra að nota skjákorts reklana frá Gigabyte heldur en ATI?
Er reyndar að nota Crossfire þannig yrði ég þá að nota ATI driverana?
Eða er þetta allt sami skíturinn?

Sent: Þri 04. Mar 2008 22:03
af ÓmarSmith
What ...

Þú sækir drivera fyrir ATI kort á http://www.ati.com punktur

þú sækir drivera fyrir Nvidia kort á http://www.nvidia.com punktur


Jesús selur.. skamm ! :8)

Þú getur reyndar googlað OMEGA drivers, það eru tweakaðir driverar sem stundum virka betur, en ég tel alltaf öruggast að sækja þetta beint frá skjákorts framleiðanda/hönnuði.

Sent: Þri 04. Mar 2008 22:35
af zedro
What ...

Þú sækir drivera fyrir ATI kort á http://www.omegadrivers.net punktur

þú sækir drivera fyrir Nvidia kort á http://www.omegadrivers.net punktur


Jesús Ómar.. skamm ! :8)

Sent: Mið 05. Mar 2008 08:49
af ÓmarSmith
Nei, samt ekki.

Stundum eru þeir einfaldlega verri en orginal drivers. Ég var að lenda í því með X1900 kortið mitt að ekki alltaf voru Omega betri.

En það er gott að prufa both.

Sent: Mið 05. Mar 2008 12:07
af Selurinn
Haha, það sakar ekki að spyrja.

Vegna þess ég hef alltaf heyrt að það sé best að sækja móðurborðsdrivera frá framleiðanda en ekki t.d. Nvidia þegar það er með nforce kubbasett.

Er það ekki rétt annars?

En það er greinilega ekki svoleiðis með skjákortsreklana.


ÓmarSmith skrifaði:What ...

Þú sækir drivera fyrir ATI kort á http://www.ati.com punktur

þú sækir drivera fyrir Nvidia kort á http://www.nvidia.com punktur


Jesús selur.. skamm ! :8)

Þú getur reyndar googlað OMEGA drivers, það eru tweakaðir driverar sem stundum virka betur, en ég tel alltaf öruggast að sækja þetta beint frá skjákorts framleiðanda/hönnuði.

Sent: Fim 06. Mar 2008 10:30
af ÓmarSmith
Selur :

´Mín reynsla er amk sú að ég hef ALLTAF sótt alla drivera fyrir ATI kortin sem ég hef á beint af ATI síðunni og sama með Nvidia driveranna og ég hef aldrei nokkurntímann lennt í vandræðum með það.

Oftar en ekki eru líka t.d gigabyte driverarnir linkaðir beint inn á http://www.nzone.com eða http://www.nvidia.com.

Sent: Fim 06. Mar 2008 19:06
af Selurinn
Takk æðislega Ómar, elska þig! :D

Sent: Fim 06. Mar 2008 19:48
af ÓmarSmith
við vorum líka að tala um skjákorts drivera only, ekki móðurborð. ;)

Sent: Fim 06. Mar 2008 21:04
af Selurinn
yes, of course of course ;)

Sent: Fim 06. Mar 2008 23:56
af Dr3dinn
Ótrúlegt nokkuð þá hefur það oft borgað sig fyrir mig í 1 persónu skotleikjum að nota eldri nvida driver.

Mun stöðugra fps heldur en ég fæ á nýjustu driverunum.

En já ég hélt að maður þyrfti að nota frá framleiðundunum. :l

alltaf lærir maður eitthvað[/b]