Síða 1 af 1

Asus EEE SD spurning

Sent: Fös 29. Feb 2008 00:11
af Selurinn
Skiptir máli að hafa eitthvað laust pláss á SD kortinu sem þú notar með tölvunni?

Þetta virkar ekki eins og HDDinn......þá er það alltaf þannig að fyrir top performance þá er það 20% laust.

Er það þannig með SD kortið líka?

Sent: Fös 29. Feb 2008 01:40
af dadik
Tjahh .. góð pæling

Ég myndi halda að þetta skipti ekki máli. Aðal málið með hörðu diskana er að ef plássið er orðið lítið og þeir fragmenteraðir þarf hausinn að ferðast út um allt til að lesa/skrifa.

Þarna erum við jú að tala um flash minni með engum hreyfanlegum hlutum þannig að þetta ætti ekki að skipta máli. Accesstíminn er fastur sama hvar gögnin eru staðsett.