Síða 1 af 1
Brenndur BIOS.
Sent: Mið 08. Okt 2003 20:17
af Tölvufantur
Sælir.
Mér tókst að steikja BIOSinn minn á ASUS A7V333 móbóinu mínu í gær. Getur einhver sagt mér hvernig ég gæti náð í svona BIOS eða hver getur brennt nýjan fyrir mig.
Sent: Mið 08. Okt 2003 20:20
af gumol
brennt BIOS?
alltaf er maður að heira eitthvað nýtt.
Sent: Mið 08. Okt 2003 20:21
af ICM
múhahaha ahaha búhúhú
.....
Þú sást þetta ekki, ég skrifaði þetta aldrei, þetta er ímyndun.
Sent: Mið 08. Okt 2003 20:25
af Tölvufantur
Jæja, CMOS
Sent: Mið 08. Okt 2003 22:11
af MezzUp
Íhlutir eru með EEPROM brennar sem að brennir BIOS kubba, svo ættu þeir líka að vera með sona kubba hugsa ég. farðu bara með móbðurborðið til þess og láttu þá tjekka á þessu fyrir þig.
mig minnir að þeir séu í skeifunni.
Sent: Mið 08. Okt 2003 22:30
af Voffinn
Ég skil ekki alveg vandamálið?
Varstu að uppfæra biosinn og það mistókst?
Sent: Fös 10. Okt 2003 20:38
af Damien
Voffinn skrifaði:Ég skil ekki alveg vandamálið?
Varstu að uppfæra biosinn og það mistókst?
Einmitt það sem ég var að hugsa...
Þegar mar segjir "steikja" þá er það oftast samheiti fyrir: að eyðileggja, rústa, klúðra einhverju svo svakalega að það er allt ónýtt og ekki hægt annað en að kaupa nýtt...
Eða þannig skil ég orðið "steikja"
Gætiru útskýrt vandamálið betur?
Re: Brenndur BIOS.
Sent: Lau 11. Okt 2003 01:56
af halanegri
Tölvufantur skrifaði:Sælir.
Mér tókst að steikja BIOSinn minn á ASUS A7V333 móbóinu mínu í gær. Getur einhver sagt mér hvernig ég gæti náð í svona BIOS eða hver getur brennt nýjan fyrir mig.
Brennt nýjan? Fyrst að vandamálið er að þú hafir brennt biosinn þinn(hvað sem það á nú að þýða), af hverju myndiru vilja að einhver myndi brenna nýjan bios?
Sent: Lau 11. Okt 2003 01:57
af RadoN
er hann ekki að meina að hann hafi rústað BIOS kubbinum og þurfi nýjan?
Sent: Lau 11. Okt 2003 02:00
af halanegri
Kannski, en það passar ekki inní "eða hver getur brennt nýjan fyrir mig.", því að þá væri hann að spyrja hvort einhver myndi vilja skemma annan kubb.

Sent: Lau 11. Okt 2003 02:02
af Fletch
Flashaðir þú bios'in með vitlausum bios ? eða klikkaði flashið ?
ef þú gerðir það þá hef ég bjargað móbós með því að taka kubbin úr (þ.e. ef hann er í socket'i) komast í annað eins móðurborð og ræsa því, fara í flash forrit, skipta um bios kubbinn meðan tölvan er í gangi og flasha.
couple of if's en ég hef bjargað nokkrum móbós með þessari aðferð...
DO IT AT YOUR OWN RISK!
Fletch
Sent: Lau 11. Okt 2003 02:05
af RadoN
það er náttúrulega ALLTAF hætta á að eitthvað skemmist þegar maður er að update'a biosinn, það eru til svona "bios savers", man ekki alveg hvað þetta heitir, en það geymir afrit af gamla ef update'ið fer í klessu.. örugglega mjög sniðugt.

Sent: Sun 12. Okt 2003 20:18
af Buddy
Ú,ff ég er nokkuð viss um að hann þarf bara að endurræsa með reset á BIOS dippunum eða halda inni Ins meðann hann ræsir.
Sent: Fös 17. Okt 2003 21:42
af Hlynzi
Jamm, ég er samt ekki alveg að skylja þig. En fyrir restina þá býður Asus hugbúnaðurinn að vista backup af gamla biosinum.
íhlutir geta brent í nýjan bios kubb, og ekkert mál að fara á
http://www.asus.com og ná sér í nýjasta biosinn og skella honum inn.
Þetta reddast (ef allt móbóið er ekki ónýtt)
Ég hef oft uppfært biosinn í Asus móbóinu mínu, Asus A7S333, og engin vandræði.