Síða 1 af 1
vesen með hýsingu/harðadiskin
Sent: Fim 14. Feb 2008 23:03
af tomas52
jæja þá ætlaði ég að fara horfa á mynd í flakkaranum mínum og ég var svo spenntur eða eikkað að ég setti usb snúruna í netkortstengið (það var óvart) og svo saðgi ég bara úpps og setti það í usb tengið sem var hliðiná en nei þá kom ekkert upp á skjáinn og ekki neitt í neitt en þá hélt ég að annaðhvot harði diskurinn eða bara hýsingin er ónýtt ? hvort er líklegra? og hvað get ég gert sett hann í viðgerð?
Sent: Fim 14. Feb 2008 23:12
af Gets
Byrjaðu á að endurræsa tölvuna og slökkva á flakkarnum og kveikja á honum aftur ef ekki gerist prófaðu þá að tengja flakkaran við aðra tölvu.
Eftir þetta skulum við sjá til með framhaldið.
..
Sent: Fim 14. Feb 2008 23:28
af tomas52
er búinn að því báðu ekkert ennþá
Sent: Fim 14. Feb 2008 23:38
af Gets
Ef að flakkarin kemur ekki inn á annari tölvu þá er næsta skref að taka diskin úr hýsinguni og tengja hann beint við móðurborðið, ef að hann virkar þá er hýsingin skemmd ef ekki þá er diskurinn skemmdur.
Ef að þetta er IDE diskur "gamla gerðin" þá ættirðu að geta tekið geisladrifið úr sambandi og tengt hann í þann kapal til að prófa.
Ef að þetta er SATA diskur "nýrri gerðin" þá þarfu SATA kapal til að tengja hann við móðurborðið "það er að segja ef að það eru SATA tenglar á þessu móðurborði.
viðgerð
Sent: Sun 17. Feb 2008 00:22
af tomas52
ég skellti honum bara í viðgerð

Re: viðgerð
Sent: Sun 17. Feb 2008 00:31
af Weekend
tomas52 skrifaði:ég skellti honum bara í viðgerð

Good for you

Re: vesen með hýsingu/harðadiskin
Sent: Sun 17. Feb 2008 16:15
af urban
tomas52 skrifaði:jæja þá ætlaði ég að fara horfa á mynd í flakkaranum mínum og ég var svo spenntur eða eikkað að ég setti usb snúruna í netkortstengið (það var óvart) og svo saðgi ég bara úpps og setti það í usb tengið sem var hliðiná en nei þá kom ekkert upp á skjáinn og ekki neitt í neitt en þá hélt ég að annaðhvot harði diskurinn eða bara hýsingin er ónýtt ? hvort er líklegra? og hvað get ég gert sett hann í viðgerð?
hvernig í ósköpunum er það hægt ?
.
Sent: Sun 17. Feb 2008 18:01
af tomas52
það var hliðná usb tenginu og þetta var svona svipað breitt og usb þannig það er hægt og svo var ég ekki að horfa þetta var aftaná
Sent: Sun 17. Feb 2008 18:03
af zedro
„Brute force the only way to go!“