Síða 1 af 1

Tölvuhátalarar

Sent: Sun 05. Okt 2003 12:20
af END
Er að leita mér að góðum tölvuhátölurum.
Hlusta mikið á tónlist í tölvunni og horfi líka á bíómyndir.
Hef heyrt að 5:1 sé ekki með bestu gæðin fyrir tónlist frekar að fá sér 2:1 sé skárra er eitthvað til í þessu?
Hvernig hátalara eruð þið með, hverjum mæliði með?

Sent: Sun 05. Okt 2003 12:32
af Arnar
Ég er með Sennheiser headphone..

Sent: Sun 05. Okt 2003 12:35
af Drizzt
Creative Inspire 5.1 5100? Annars hef ég lítið vit á þessu, mig langar hins vegar í svona

Sent: Sun 05. Okt 2003 12:48
af Arnar
Þessi headphone kosta bara 9þús, ekkert klikk.

Sent: Sun 05. Okt 2003 13:07
af Damien
Eða að fá sér Altec Lansing hátalara.
2 hátalarar + bassabox = bestu tölvuhátalarar sem ég hef á æfi minni heyrt í! :shock:

Ég er með 50.000.- kr Panasonic græjur í herberginu mínu og þessir Altec hátalarar eru næstum að owna þær... næstum því...

Þetta eru geeeðveikir hátalarar, því miður veit ég ekki hvar er hægt að fá sonna en þetta fylgdi með dell tölvu þannig að þú getur prufað hjá EJS eða Hug en þeir eru með dell umboðið. :)

Re: Tölvuhátalarar

Sent: Sun 05. Okt 2003 14:06
af gumol
END skrifaði:Er að leita mér að góðum tölvuhátölurum.
Hlusta mikið á tónlist í tölvunni og horfi líka á bíómyndir.
Hef heyrt að 5:1 sé ekki með bestu gæðin fyrir tónlist frekar að fá sér 2:1 sé skárra er eitthvað til í þessu?
Hvernig hátalara eruð þið með, hverjum mæliði með?

Ég er með Sound Blaster® Audigy™ 2 hljóðkort og Creative® Inspire™ 6.1 hátalara og er Mjög ánægður, get stillt hátalarana á hæstu stillingu án þess að heira neitt "brak" (heiri varla neit því það er svo hátt)

Sent: Sun 05. Okt 2003 14:51
af Roger_the_shrubber
Ég er bara með 2000 kr. headphones sem ég keypti af Tölvuvirkni :8)

Sent: Sun 05. Okt 2003 18:03
af aRnor`
Ég keypti fyrir löngu svakalegt hátalara sett U.S. Blasters , Svakalegt Bassabox og 5 hátalarar , sem gefur 5.1.

Tölvulistinn er að selja þetta veit ég.
Maður sér ekki eftir þessum kaupum.

Sent: Sun 05. Okt 2003 19:08
af MezzUp
ég er með einhverja drasl hátlara sem að fylgdu með gömlu tölvunni og síðan þegar ég tek CS alvarlega þá set ég á mig Sennheiser HD437 heyrnartólin