Síða 1 af 2
ARGH! Ég braut ATI Radeon 9700 Pro!
Sent: Sun 05. Okt 2003 01:42
af Damien
Eins og titillinn segjir til um þá braut ég skjákortið mitt þegar ég var að reyna að setja vatnskælingarblock á það.
Ég var að reyna að ná heatsinkinu af og það var eikkað fast og ég ytti á eftir því með lítilli töng. Ég fór ekki nógu varlega með þeim afleiðingum að töngin snérist og rakst í lítinn kubb sem losnaði upp af kortinu.
Nú spyr ég: Er skjákortið ónýtt eða er nóg að fara með það í viðgerð og láta festa kubbinn aftur á kortið? Kubburinn sjálfur virðist ekki neitt skemdur, hann bara er laus...
Á kubbnum stendur "^226C R132R"
Sent: Sun 05. Okt 2003 02:12
af Fletch
æ!!!
spurning hvort þú gætir látið vanan lóðara græja þessu ?
Fletch
Sent: Sun 05. Okt 2003 02:56
af Zaphod
bömmer mar
nú er það bara gamli góði lóðboltinn

Sent: Sun 05. Okt 2003 05:14
af halanegri
Ohh, ég bjóst við mynd af korti í molum.....

Sent: Sun 05. Okt 2003 12:49
af Damien
Amm ég þakka samúðina...
Ég ætla að fara með það á morgun og athuga hvort það sé hægt að bjarga því með því að lóða það...
Það hallærisleg er að um leið og ég var búinn að brjóta kubbinn, þá fattaði ég hvernig
Á að losa heatsinkið.
1. Draga 2 pinna upp úr sinkinu. 2.klemma 2 klemmur saman. 3. Nudda Heatsinkinu af....
sorglegt...

dd
Sent: Sun 05. Okt 2003 13:07
af ICM
þegar þú segir brotið þá fær fólk þessa mynd í hugan
Sent: Sun 05. Okt 2003 13:12
af Damien
Hehe, já þetta var kannski pínu overstatement á titlinum.
En það er samt brotið
Svo var ég að skoða á vaktin.is og þar sá ég að nokkur fyrirtæki væru að selja 9700 pro en svo þegar ég tékkaði á því þá voru þau ekki á síðunum.
Kannski hættir að selja 9700? Ætli ég þurfi í versta falli að kaupa mér 9800 pro sem kostar 60.000.-

Sent: Þri 07. Okt 2003 16:20
af Damien
Jæja þá er það offical: Ég eyðilagði skjákorið mitt...
Kallinn sem reyndi að gera við þetta gat það ekki, tengin á kubbnum brotnuðu af þannig að hann náði engu sambandi.
Ég spurði hann hvort hann gæti ekki sett stóra tin-bólu þarna á, sonna til að prufa, og spurði svo hvort hann gæti ekki prufað þetta fyrst í sínum tölvum vegna þess að mín tölva er í augnarblikinu ber kassi og móðurborð
Hann hló að mér... og spurði hvort ég væri þá tilbúinn í að borga nýtt móðurborð ef eikkað grillast...
Ég þakkaði innilega fyrir hans *effort* tók kortið mitt og labbaði út...
Bottomline: Ég þarf að kaupa mér nýtt sjákort... Var að pæla í Radeon 9800 Pro 256MB sonna til að gera þetta almennilega fyrst að 9700 Pro er ekki til á íslandi. Veit að það er soldið sjúkt en fyrst ég er að þessu á annað borð þá ætla ég að gera þetta almennilega.

Sent: Þri 07. Okt 2003 16:59
af ICM
Hvað er þetta þú kaupir þér bara nýjan LBs521 kubb og lóðar þar við.
...
Ef það væri slíkur kubbur til
Sent: Þri 07. Okt 2003 17:03
af Damien
Ég einmitt spurði hann að því en hann sagði að það væri mjög ólíklegt að mar gæti fengið svona kubb...

Sent: Þri 07. Okt 2003 17:24
af Fletch
prófaðu að post'a á erlendum forums, ef ATi sjálfir eru ekki með... hvort þú getir fengið svona kubb, eða annan sem gerir það sama og þessi gerði
synd ef þetta væri ónýtt!
Fletch
Sent: Þri 07. Okt 2003 18:56
af OverClocker
Þú getur prófað að auglýsa kortið til sölu hér á vaktinni en taka þó fram hvað gerðist og að það sé selt í því ástandi..
Ég er viss um að einhverjir gúrúar hérna væru til í að reyna að koma því í lag...
Sent: Þri 07. Okt 2003 22:16
af Damien
Jamm, thx ég ætla að prufa að auglýsa þetta.
Nú þegar ég þarf að kaupa nýtt sjákort þá er ég búinn að ákveða að kaupa 9800 Pro 128MB.
Það er ódýrast í Tölvulistanum..
..og það eintak er framleitt af ATI en ekki Sphire eins og hjá Computer.is
Er ekki allt í lagi að versla við Tölvulistann ef þú veist hvað þú ætlar að kaupa?
2. Spurning: ATI kort framleidd af Gigabyte, eru þau ekki talin nokkuð góð?
Gigabyte er nokkuð góður framleiðandi ekki satt?
Sent: Þri 07. Okt 2003 22:18
af Fletch
Eitt gott við Sapphire kortin, þau almennt yfirklukkast mjög vel...
Fletch
Sent: Þri 07. Okt 2003 22:58
af OverClocker
Eitt comment varðandi ATi.. einhver sagði mér að það væri vesen með TV-out á þessum kortum þar sem þau væru með NTSC output en ekki PAL.. nú veit ég bara ekkert hvort eitthvað sé til í því.... einhver?
Allt frá Gigabyte er traust...
Sent: Mið 08. Okt 2003 04:27
af J0ssari
Það er nú lámark að prófa kortið í tölvu. Nóg að hún hafi agp slot ...~300mhz drusla er ekki stór skaði.
Hvernig kubbur er þetta ?, ætti að vera hægt að mæla hann út / fletta upp / fá info um hann frá ati (ólýklegt sammt =).
Sent: Mið 08. Okt 2003 10:01
af OverClocker
Ég myndi nú kanna fyrst hvort að kortið megi fara í eldri gerð af móðurborðum.. þar sem sum ný móðurborð þola ekki eldri týpur af skjákortum (hærri straumur í AGP3.0)
Re: dd
Sent: Mið 08. Okt 2003 13:02
af tms
IceCaveman skrifaði:þegar þú segir brotið þá fær fólk þessa mynd í hugan
Hehehe nú hló ég út hátt. Góður að bæta við "æ æ æ"

Sent: Mið 08. Okt 2003 15:30
af Damien
Fletch skrifaði:Eitt gott við Sapphire kortin, þau almennt yfirklukkast mjög vel...
Fletch
En er einhver galli við þau?
Eru þau verri en önnur kort... ég hef bara heyrt það, aldrei fengið neina ástæðu

Sent: Mið 08. Okt 2003 17:10
af Fletch
Damien skrifaði:En er einhver galli við þau?
Eru þau verri en önnur kort... ég hef bara heyrt það, aldrei fengið neina ástæðu

Nei, ég hef séð neitt um það...
Eina sem ég hef séð er að sumir segja að kaupa bara built by ATi kort... en ekki séð nein rök fyrir því... þvert á móti
Fletch
Sent: Mið 08. Okt 2003 17:21
af ICM
fletch það var þannig áður að öll kort sem voru byggð á tækni "lánaðri" frá nVIDIA eða 3DFX, eins og t.d. Creative kortin voru stöðugt að bila.
Það er fólk sem man eftir þeim tíma sem er hrætt við að kaupa kort sem eru ekki gerð algjörlega af upprunalegum framleiðanda.
Sent: Mið 08. Okt 2003 17:24
af Fletch
já, meinar... en í dag nota næstum allir framleiðendur reference design og flestir þeirra þá bæta hönnunina/kælinguna/designið... sjaldnast sem það er verra í dag...
Til dæmis komu ATi 9700 kortin oft læst frá ATi, þ.e. var ekki hægt að yfirklukka þau nema flasha bios'in með einhverjum sem er ekki supported..
Fletch
Sent: Mið 08. Okt 2003 19:15
af Damien
Solles..
E finnst þér að ég ætti frekar að fá mér saphire kort ef ég ætla að overclocka?
Ég meina odinn gat ekki overclockað sitt 9800 um nema 30MHz og þá komu artifacts
Ég keypti nú einusinni Vatns GPU kælikubb
asnalegt ef ég hef enga þörf fyrir það útaf því að kortið oc svo lítið að það í rauninni þarf ekki...
fyrir utan að GPU kubburinn er nottla gegt cool

Sent: Mið 08. Okt 2003 21:02
af Fletch
Fyrstu ATi kortin komu læst, gast ekki yfirklukkað neitt, voru bara föst á default MHz...
en þegar þú ert búin að vatnskæla kortið geturu líka farið að hækka volt'in því, AGP er default 1.5V á þessum kortum, getur sett t.d. 1.6V but do it at your own risk!!!
Fletch
Sent: Fim 09. Okt 2003 16:32
af Damien
Fletch skrifaði:Fyrstu ATi kortin komu læst, gast ekki yfirklukkað neitt, voru bara föst á default MHz...
En það er ekki lengur semsagt...