Síða 1 af 1
Windows Vista redy tölva?
Sent: Mið 23. Jan 2008 10:45
af Windowsman
Ég er að velta hér fyrir mér lágmarkskröfum Windows Vista.
Manni langar að setja upp Vista en lágmarkskröfurnar eru þessar:
Windows Vista Premium-tæk tölva hefur að minnsta kosti:
•
1 GHz 32-bita (x86) eða 64-bita (x64) gjörva1.
•
1 GB minni.
•
Myndgjörva sem keyrir Windows Aero2.
•
128 MB myndminni.
•
40 GB harðan disk með 15 GB lausu diskrými.
•
Dvd-rom-drif3.
•
Hljóðtengisbúnað.
•
Búnað til Internetaðgangs.
Ég er með allt þetta nema ég veit ekki með Myndgjörva sem keyrir Windows Aero2.
Né
1 GHz 32-bita (x86) eða 64-bita (x64) gjörva1.
Hvernig kemst ég að því hvort að þetta sé í tölvunni minni?
Samkvæmt CPu-Z er þetta Intel pentium 4 530, Core Speed 2992, Rated FSB 798.
Sent: Mið 23. Jan 2008 11:10
af dadik
Þú ert með Pentium 4 - 3Ghz (Core Speed 2992) sem dugir alveg.
Næst þarftu að komast að hvernig skjákort þú ert með. Hægrismelltu á desktoppinn hjá þér og veldu Properties. Það smellirðu á Settings flipann og svo Advanced. Þú smellir á Adapter í glugganum sem birtist til að sjá hvernig skjákort þú ert með og hversu mikið minni það hefur.
Sent: Mið 23. Jan 2008 12:55
af Windowsman
Ég er með Card name: RADEON X300 Series
Manufacturer: ATI Technologies Inc.
Chip type: RADEON X300 SE (0x5B60)
Sent: Mið 23. Jan 2008 13:05
af ErectuZ
Þess má geta að þú getur auðvitað keyrt Vista á Classic look, þá ertu ekki með Aero þemað og getur notað eiginlega bara hvaða skjákort sem er

Sent: Mið 23. Jan 2008 13:12
af Dazy crazy
Bróðir minn er með acer með einu gígabæti í vinnsluminni og það finnst mér nú frekar leiðinlega hægt og vitlaust.
Everest ultimate edition finnst mér gott forrit til að vita hvað er í tölvunni minni.
Sent: Mið 23. Jan 2008 13:19
af Windowsman
Ég get alltaf bætt við 1 gb vinnsluminni.
En hvernig er Vista á Classic look
Sent: Mið 23. Jan 2008 13:41
af Tjobbi
Gott er að hafa í huga að bara vista sjálft er að éta upp 1gb. Ég myndi ráðleggja þér að fá þér annað til sem fyrst.
Þá ætti vélin að runna ágætlega.
Varðandi Skjákortið þitt (X300) þá held ég að það sé best fyrir þig að keyra það í Classic Look eða uppfæra í annað skjákort.
Örgjörfinn nægir.
Kveðja.
Sent: Mið 23. Jan 2008 13:44
af Windowsman
Takk
Sent: Mið 23. Jan 2008 14:43
af ÓmarSmith
Ekki fá þér VISTA ef þú þarft þess ekki. Xp er hraðara og miklu betra support fyrir það .
Ég hálfpartinn sé eftir að hafa fengið mér vista fyrir ári síðan. Enda boota ég vélinni ALDREI upp í því.
Eina sem ég nota í Vista er Media Center og punktur.
Sent: Mið 23. Jan 2008 15:05
af Halli25
ÓmarSmith skrifaði:Ekki fá þér VISTA ef þú þarft þess ekki. Xp er hraðara og miklu betra support fyrir það .
Ég hálfpartinn sé eftir að hafa fengið mér vista fyrir ári síðan. Enda boota ég vélinni ALDREI upp í því.
Eina sem ég nota í Vista er Media Center og punktur.
farðu og náðu í SP1 betuna! Þetta er alltaf svona þegar það kemur nýtt stýrikerfi frá microsuck winblows... fyrsta árið fer í að fínstilla það og ekki sjens að ég fari að láta nota mig sem tilraunadýr
Win 98, win2000 og winXP hafa öll verið svona... nefni ekki ME í þessari upptalningu af augljósum ástæðum

Sent: Mið 23. Jan 2008 15:20
af ÓmarSmith
haha
Win 2000 var samt eflaust lang besta og stabílasta kerfið með mestu Service pack-inn.
windows ME .. OMG !!!
Sent: Mið 23. Jan 2008 16:40
af Xyron
Two friends are talking about computers;
Person 1: I hear if you play the Windows ME backwards, you get a Satanic message.
Person 2: That's nothing. If you play it forward, it installs Windows ME.
Customer: I'm running Windows ME...
Helpdesk: Yes...
Customer: ...and now my computer stopped working!
Helpdesk: Yes, you already said that
develor explaining programming to a user
Developer: Everyone know that the best programms get done when programmers have had couple of beers..
User: But what happens when programmers have more than couple of beers and write programms?
Developer: Remember Windows ME?
Sent: Mið 23. Jan 2008 17:17
af ErectuZ
Windowsman skrifaði:En hvernig er Vista á Classic look
Viðmótið lítur út eins og Windows 2000
En svo er náttúrulega líka hægt að keyra Vista án Aero, og þá er viðmótið bara eins og Vista á að vera nema bara án gegnsærra glugga o.fl

Sent: Mið 23. Jan 2008 17:18
af Dazy crazy
hahahahah snilld þetta er meistaraverk.
rofl

Sent: Fös 25. Jan 2008 10:00
af Windowsman
Ok.
Er líka að spá í hvort að ég geti notað Windows Vista Ulitamate á Dell optilex 240,
Sem er með Intel Pentium 4 1.6, ddr 1gb og svona.
Sent: Fös 25. Jan 2008 18:06
af Dazy crazy
pentium örrarnir eru held ég ekki 64 bita en ultimate er held ég bara 64 bita, hvernig runna annars 32 bita örgjörfar 64 bita stýrikerfi?
Sent: Fös 25. Jan 2008 19:03
af beatmaster
dagur90 skrifaði:pentium örrarnir eru held ég ekki 64 bita en ultimate er held ég bara 64 bita, hvernig runna annars 32 bita örgjörfar 64 bita stýrikerfi?
Þeir (það er rangt að tala um að rönna, ég lofa að vanda málfar mitt annars verð ég bannaður, lengi lifi ritskoðun!) þá ekki og Ultimate er til 32 og 64 bita
Sent: Fös 25. Jan 2008 20:37
af Dazy crazy
Ég persónulega myndi ekki fá mér vista með þennan örgjörfa, bara til þess að eyða allt of miklu af orku örrans í óþarfa.