Nákvæm sjúkdómslýsing: ég er með í tölvunni örgjörva, minniskubb (búinn að prófa fleiri en einn) skjákort og disklingadrif. Ef ég ýti á powertakkan fara vifturnar í gang, en síðan kemur eitthvað furðulegt píp (ekki úr speakerinum) og tölvan slekkur á sér. Til að fá hana aftur í gang þarf ég að slökkva og kveikja á psuinu, power takkinn svara ekki eftir eina svona ræsingu. Svona ræsir "tölvan" sig alltaf.
Nema þegar ég tók örgjörvan úr, þá fóru allar viftur af stað og tölvan slökkti bara ekkert á sér og pípti ekkert. Gæti það bent til að örgjörvinn væri bilaður?
Er ég kannski ekki búinn að setja nóg af drasli í tölvuna til að hún ræsi sig? Eða er ég bara kannski að tengja einhver tengi vitlaust?
