Síða 1 af 1

Tölvuskjár (Sjónvarp) Tollur ????

Sent: Lau 29. Des 2007 14:48
af hsm
Sælir
Ég var að spá í að láta koma með fyrir mig LCD sjónvarp frá DK sem ég ætla að tengja við tölvuna fyrir video og eitthvað meira.
Þetta tæki kostar um 10.500 Dkr eða um 129.000 kr Isl.
Veit einhver hvað ég þarf að borga í toll af svona tæki.

Tækið
Get fengið það á 10.500 Dkr í gegnum systir mína í DK í þessari búð.
Er bara að spá í hvort að það borgar sig.
Þekki fólk sem er að koma heim 6. jan.

Kv HSM

Sent: Lau 29. Des 2007 14:59
af hagur
Af því að þetta tæki er sjónvarp, en ekki bara "monitor" (Það er tuner í því), þá þarftu að borga himinháa tolla OG vörugjöld.

... hið opinbera leggur 67% gjöld á sjónvarpstæki. Þar af eru 7.5% tollur, 25% vörugjöld og 24.5% virðisaukaskattur.


Nánar hér: http://blogg.visir.is/getalife/2007/07/ ... %c3%a6kja/

Sent: Lau 29. Des 2007 15:38
af hsm
Já mig grunaði að það væru ansi há gjöld á þessu :evil:
En ég fæ vaskinn til baka í DK og má svo draga frá 27.000 kr af verðinu sem ég þarf að borga toll af í flugstöðinni :?
Takk kærlega fyrir þetta, þarf aðeins að reikna þetta út og sjá til :8)

Sent: Lau 29. Des 2007 18:55
af Minuz1
hsm skrifaði:Já mig grunaði að það væru ansi há gjöld á þessu :evil:
En ég fæ vaskinn til baka í DK og má svo draga frá 27.000 kr af verðinu sem ég þarf að borga toll af í flugstöðinni :?
Takk kærlega fyrir þetta, þarf aðeins að reikna þetta út og sjá til :8)


Uhm nei...ef varan kostar meira þá er tekin full gjöld af öllu.

Sent: Lau 29. Des 2007 18:57
af Viktor
Eitthvað kannast ég við þetta gula skrímsli... B hvað?

Mynd

Sent: Lau 29. Des 2007 19:17
af halldorjonz
Viktor skrifaði:Eitthvað kannast ég við þetta gula skrímsli... B hvað?

Mynd


haha

Sent: Sun 30. Des 2007 02:02
af hsm
Minuz1 skrifaði:
hsm skrifaði:Já mig grunaði að það væru ansi há gjöld á þessu :evil:
En ég fæ vaskinn til baka í DK og má svo draga frá 27.000 kr af verðinu sem ég þarf að borga toll af í flugstöðinni :?
Takk kærlega fyrir þetta, þarf aðeins að reikna þetta út og sjá til :8)


Uhm nei...ef varan kostar meira þá er tekin full gjöld af öllu.


Skrítið, því að ég kom með Canon 400D frá DK í sumar og er með nótuna frá tollinum, þar segir

Myndavél 6.000 kr DK
Gengi 12.7
Skattstofn 49.196 kr Isl
Vsk 24.5% eða 12.053,02

12.053 kr sem ég borgaði :?

þannig að ef þú hefur rétt fyrir þér væri ágætt að fá heimildir

Sent: Sun 30. Des 2007 02:40
af depill
hsm skrifaði:
Minuz1 skrifaði:
hsm skrifaði:Já mig grunaði að það væru ansi há gjöld á þessu :evil:
En ég fæ vaskinn til baka í DK og má svo draga frá 27.000 kr af verðinu sem ég þarf að borga toll af í flugstöðinni :?
Takk kærlega fyrir þetta, þarf aðeins að reikna þetta út og sjá til :8)


Uhm nei...ef varan kostar meira þá er tekin full gjöld af öllu.

þannig að ef þú hefur rétt fyrir þér væri ágætt að fá heimildir


Þú hefur rétt fyrir þér, ekki Minuz1,

http://tollur.is/default.asp?cat_id=109 skrifaði:Verðmæti hvers hlutar má þó ekki vera meira en 23.000 kr.; sé verðmæti hlutar meira en 23.000 kr., getur viðkomandi notið tollfríðinda miðað við þá fjárhæð og greitt innflutningsgjöld af því verðmæti sem umfram er.


Sem sagt ef hluturinn kostar 100 þúsund, færðu tollfríðindi uppá 23.000 kr, og já þú færð VSKinn af út í DK ( gegn því að þetta sé ferðamaður sem á ekki return-passa til DK ) en þú þarft svo að borga VSK á Íslandi. Allavega þá er LCD sjónvarp í tollflokki 8528.5900
https://vefafgreidsla.tollur.is/tollalina/TAV/yfirlit.aspx?F=16&K=85&T=85285900 skrifaði:Almennur tollur: 7,50%
Úrvinnslugjald á pappaumbúðum kr/kg: 7 kr
Úrvinnslugjald á plastumbúðum kr/kg: 3 kr
Gjald af eftirlitsskyldum rafföngum (0,15%): 0,15%
Vörugjald: 25%


Svo gæti verið að þú lendir í veseni með að þú þarft sér tolleyfi til að flytja inn sjónvörp með móttakara og þurfir að láta annan gera tollskýrsluna og þá leggst það gjald líka á tækið, það er svona 1000 - 2000 kr.