Síða 1 af 1

19" skjár

Sent: Þri 18. Des 2007 18:52
af Selurinn
http://www.tb.is/?gluggi=vara&vara=884

Hvernig er það með þennan?
Er ekki 8ms allt of mikið!?

Eða skiptir það minni máli á svona litlum skjáum?

Og ef fólk fer að benda á 20-24" skjái þá nei, þetta verður að vera 19" skjár :S

Sent: Þri 18. Des 2007 21:23
af Yank
Þessi skjár er nú ekki til þarna hjá þeim.

En svo ég svari spurningunni þá er 8ms nægjanlega lár viðbragðs tími til þess að mjög ólíklegt sé að ghosting verði vandamál. Viðbragðstími skiptir alltaf máli óháð stærð skjáar.

16ms já líklega, 12ms mögulega en minna en það ólíklegt. Annars er ekkert gefið í þessu því framleiðendur hafa í gegnum tíðina farið frjálslega með að setja viðbragðstíma á sína skjái, þó ekki stórt vandamál í dag.

Sent: Þri 18. Des 2007 22:16
af ÓmarSmith
En þú ferð varla að eyða 25000 í 19" LCD þegar 22" er á sama prís !!!

Sent: Þri 18. Des 2007 22:51
af zedro
Ef þú ætlar að kaupa þennan skjá þá mæli ég með að kaupa hann frekar hjá computer.is afhverju?
Jú Computer.is og Tæknibær er sama búllan nema það að computer.is er aðeins ódyrari

http://computer.is/vorur/884
http://www.tb.is/?gluggi=vara&vara=884

Smá dejavú hér á ferð sama id og nákvæmlega eins lýsing hmmm :lol:

Einnig ef þú ert reiðubúinn að eiða 25k á 19" þá mæli ég með að þú skellir 3.500 kr uppá það og fáir þér KDS K-22mdvb2 22"whoyeah

Sent: Mið 19. Des 2007 01:05
af Selurinn
ÓmarSmith skrifaði:En þú ferð varla að eyða 25000 í 19" LCD þegar 22" er á sama prís !!!


En 11k notaðan 7 mánuði :S

Sent: Mið 19. Des 2007 12:58
af ÓmarSmith
hver á að skilja þetta

" 11k notaðan 7 mánuði " ?

færðu að hafa hann í 7 mánuði fyrir 11k. Eða ertu að kaupa 7 mánaða gamlan skjá á 11k ?

Sent: Fös 21. Des 2007 14:31
af Selurinn
ÓmarSmith skrifaði:hver á að skilja þetta

" 11k notaðan 7 mánuði " ?

færðu að hafa hann í 7 mánuði fyrir 11k. Eða ertu að kaupa 7 mánaða gamlan skjá á 11k ?


Kaupa 19" skjá fyrir 11k