Síða 1 af 1

k8n neo4.. 3gb minni en bara 2gb koma framm?

Sent: Sun 16. Des 2007 18:34
af DaRKSTaR
furðulegur fjandi.

ég er með 2x 1gb kubba og 2x 512mb kubba, hugsaði með mér að þessir 2x 512mb væru vandamálið. tók þá úr og skildi hina 2 eftir.. fæ ég bara 1gb.

prufaði 1gb kubb og fór með hann á milli raufa og hann kemur alltaf upp sem 512mb, prufaði hinn gb kubbinn alveg það sama.

eins og að raufarnar séu stilltar á max 512mb í bíós.. búinn að loda bíos default og allann pakkann. eins og hún vilji ekki sjá 1gb þó svo að manualinn segi að ég geti haft 1gb kubba í hvaða rauf sem er total 4gb.

núna henti ég þeim öllum í aftur í annari röð, 1gb kubbana í raufar 1+2 og hina í raufar 3+4 sama staða.. bara með 2gb einhver annar sem hefur verið í svipuðu basli og vita hvað er í gángi?

Sent: Sun 16. Des 2007 18:51
af TechHead
Well....

Annaðhvort eru þessir "1024mb" einungis sitthvor 512mb kubburinn (2x 512) Man eftir einhverjum Corsair Kittum sem voru þannig fáranlega merkt.
Stóð semsé 1024mb á kubbunum en það var verið að vísa í að það væri
1024mb KIT.

Hinsvegar ef að þetta eru í raun 1024mb kubbar þá getur verið að þetta
tiltekna móðurborð styðji ekki Double-Sided Modules af þessari tegund.
Þá er því miður eina lausnin að fá aðra kubba sem borðið styður.